Marinerdalirnir
Útlit
![](https://cdn.statically.io/img/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/56/Mars_Valles_Marineris.jpeg/220px-Mars_Valles_Marineris.jpeg)
Marinerdalirnir eru feiknastórt gljúfrakerfi sem tegir sig eftir miðbaug Mars, þeir eru staðsettir austan við Þarsis-svæðið og teigja sig frá dalakerfi sem kallast Noctis Labyrinthus í vestri til austurs.
Landafræði
[breyta | breyta frumkóða]Gljúfrin eru 4.500 km löng, 200 km breið og 11 km djúp. Gljúfrakerfið er það lengsta í sólkerfinu.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Marinerdalirnir heita í höfuðið á Mariner áætluninni, en geimfarið Mariner 9 sem var hluti af þeirri áætlun uppgvötaði þá 1972.