Beint í aðalefni
Texti í samtalsglugga byrjar

Svona virka gestaumsagnir

Hver umsagnareinkunn er á milli 1-10. Til að fá út heildareinkunnina sem þú sérð leggjum við saman allar umsagnareinkunnir sem við höfum fengið og deilum þeirri samtölu með fjölda umsagnareinkunna sem við höfum fengið. Við notum vegið umsagnarkerfi fyrir gististaði á Möltu og Íslandi (ekki fyrir hótel og orlofshúsakeðjur). Því nýlegri sem umsögnin er fyrir eignir á þessum stöðum, því meiri verða heildaráhrifin á umsagnareinkunnina. Að auki geta gestir einnig gefið sérstakar „undireinkunnir“ á mikilvægum sviðum, svo sem: staðsetningu, hreinlæti, starfsfólk, þægindi, aðstöðu, verðgildi og ókeypis WiFi. Athugið að gestir gefa undireinkunnir sínar og heildareinkunnir óháð öðru og því eru engin bein tengsl á milli þeirra.

Þú getur gefið umsögn um gististað sem þú bókaðir á vettvangi okkar ef þú gistir þar eða ef þú mættir á gististaðinn en gistir ekki þar. Til að breyta umsögn sem þú hefur þegar sent inn skaltu hafa samband við þjónustuverið okkar.

Við erum með starfsfólk og sjálfvirk kerfi sem eru sérhæfð í að finna falsaðar umsagnir sem sendar eru inn á vettvangi okkar. Ef við finnum slíkar eyðum við þeim og, ef nauðsynlegt er, grípum við til aðgerða gegn þeim sem bera ábyrgð á þeim.

Allir aðrir sem koma auga á eitthvað grunsamlegt geta alltaf tilkynnt það til þjónustuvers okkar svo svikadeild okkar geti athugað málið.

Helst viljum við birta allar umsagnir sem okkur berast, hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar. Við birtum þó engar umsagnir sem innihalda eða vísa til eftirfarandi atriða (meðal annarra):

  • Pólitískt viðkvæmar athugasemdir
  • Kynningarefni
  • Ólöglegar athafnir
  • Persónulegar eða viðkvæmar upplýsingar (t.d. netföng, símanúmer eða kreditkortaupplýsingar)
  • Blótsyrði, kynferðislegar tilvísanir, hatursáróður, mismununarathugasemdir, hótanir eða tilvísanir í ofbeldi
  • Amapóstur og falsað efni
  • Dýraníð
  • Að villt sé á sér heimildir (t.d. ef umsagnaraðilinn segist vera einhver annar).
  • Hvers kyns frávik frá umsagnarleiðbeiningum okkar.

Til að ganga úr skugga um að umsagnir séu viðeigandi gætum við aðeins samþykkt umsagnir sem eru sendar innan 3 mánaða frá útskráningu og við gætum hætt að sýna umsagnir 36 mánaða eða eldri - eða ef eigendaskipti verða á gistiþjónustunni.

Gistiþjónusta getur valið að svara umsögn.

Þegar þú sérð fleiri en eina umsögn eru nýjustu umsagnirnar efst, þó með nokkrum öðrum skilyrðum (tungumál umsagnarinnar, hvort hún sé bara einkunn eða innihaldi líka ummæli o.s.frv.). Hægt er að raða þeim og/eða sía þær (eftir árstíma, umsagnareinkunn o.s.frv.).

Stundum sýnum við utanaðkomandi umsagnareinkunnir frá öðrum vel þekktum ferðavefsíðum. Við tökum það skýrt fram þegar við höfum gert þetta.

Reglur og staðlar fyrir umsagnir

Þessar reglur og staðlar miða að því að halda efninu á Booking.com viðeigandi og fjölskylduvænu án þess að takmarka tjáningu á sterkum skoðunum. Þær eiga einnig við óháð þeim sjónarmiðm sem fram koma í athugasemdunum.

Umsagnirnar ættu að vera ferðatengdar. Gagnlegustu umsagnirnar eru nákvæmar og aðstoða aðra við ákvörðunartöku. Umsagnirnar skulu ekki innihalda persónulegar, pólitískar, siðferðislegar eða trúarlegar athugasemdir. Kynningarefni verður fjarlægt og athugasemdum er varða þjónustu Booking.com verður beint til starfsfólks þjónustuversins eða gistibókunarþjónustunnar.

Umsagnirnar skulu vera viðeigandi fyrir alþjóðlegan hóp viðskiptavina. Vinsamlegast forðist að nota blótsyrði eða reyna að líkja við blótsyrði með annars konar stafsetningu, á nokkru tungumáli. Athugasemdir og annað efni sem felur í sér „hatursfulla orðræðu“, fordóma, hótanir, kynferðislegar athugasemdir, ofbeldi og stuðlun að ólöglegum athöfnum, er ekki leyft.

Allt efni skal vera ósvikið og einstakt fyrir gestinn. Umsagnir eru gagnlegastar þegar þær upprunnar frá gestum og óhlutdrægar. Umsögn þín skal vera þín. Samstarfsaðilar Booking.com skulu aldrei skrifa umsögn fyrir hönd gests eða bjóða umbun í stað umsagnar. Tilraunir til að lækka einkunn samkeppnisaðila með því að skrifa neikvæða umsögn verða ekki liðnar.

Virðing fyrir friðhelgi annarra. Booking.com reynir að fela netföng, símanúmer, vefslóðir, tengingar við samfélagsmiðla og svipaðar upplýsingar.

Skoðanir sem fram koma í umsögnum eru skoðanir viðskiptavina og gististaða Booking.com en ekki skoðanir Booking.com. Booking.com ber ekki ábyrgð og hefur ekki skyldum að gegna gagnvart umsögnum eða svörum við þeim. Booking.com er dreifingaraðili (án skyldu til að staðfesta) og ekki útgefandi þessara umsagna og svara.

Umsögnum er almennt raðað eftir dagsetningum og öðrum forsendum svo gagnlegustu umsagnirnar birtist; þar á meðal tungumáli, umsögnum með texta og umsögnum sem gerðar eru undir nafni. Aðrir möguleikar á röðun gætu verið í boði (eftir tegund ferðalanga, eftir einkunn o.s.frv.).

Þýðingafyrirvari

Þessi þjónusta gæti innihaldið þýðingar frá Google. Google firrir sig öllum ábyrgðum tengdum þýðingunum, eindregnum eða óbeinum, þ.á.m. ábyrgðum varðandi nákvæmni, áreiðanleika og óbeinum ábyrgðum varðandi markaðsbærni, hæfi fyrir tiltekinn tilgang og eftirfylgni við höfundarrétt.

Texti í samtalsglugga endar