Beint í aðalefni
Prenta / vista

Trúnaðar- og fótsporayfirlýsing

Trúnaðaryfirlýsing

22. desember 2023

Fyrst ber að nefna að öryggi persónuupplýsinga þinna skiptir okkur máli. Við vitum vel að flestar sambærilegar tilkynningar hafa einnig orð á þessu en okkur er fúlasta alvara. Þú hefur lagt traust þitt á okkur með því að nýta þér þjónustu Booking.com og við kunnum að meta það. Það þýðir að við leggjum okkur fram um að vernda persónuupplýsingarnar þínar. Við berum hag viðskiptavina okkar fyrir brjósti og við aðhyllumst gagnsæi þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinganna þinna.

Þetta skjal („þessi persónuverndaryfirlýsing“ eða „persónuverndaryfirlýsing okkar“) lýsir því hvernig við notum og vinnum úr persónuupplýsingunum þínum á læsilegan og gagnsæjan hátt. Jafnframt er útskýrt hvaða rétt þú getur nýtt þér í tengslum við persónuupplýsingar og hvernig þú getur haft samband við okkur. Þú skalt einnig lesa fótsporayfirlýsinguna okkar sem útskýrir hvernig Booking.com notar fótspor og aðrar álíka rakningaraðferðir.

Ef þú hefur einhvern tímann nýtt þér þjónustu okkar þá veist þú nú þegar að Booking.com býður upp á ferðatengda þjónustu á eigin vefsíðum og öppum fyrir snjalltæki ásamt annars konar vettvöngum á netinu eins og vefsíðum samstarfsaðila og samfélagsmiðlum. Við viljum benda á að allar upplýsingar sem þú ert að fara að lesa eiga almennt við um alla þessa vettvanga.

Trúnaðaryfirlýsing þessi á við hvers konar upplýsingar um viðskiptavini sem við söfnum saman á öllum ofangreindum vettvöngum eða á einhvern annan máta tengdum þessum vettvöngum.

Ef þú ert einn af viðskiptafélögum okkar skaltu einnig skoða persónuverndaryfirlýsingu okkar gagnvart viðskiptafélögum til að sjá hvernig unnið er nánar úr persónuupplýsingum sem hluta af viðskiptasambandinu.

Við gætum mögulega breytt þessari trúnaðaryfirlýsingu öðru hvoru og því mælum við með því að þú kíkir á þessa síðu inn á milli til að þú vitir hver staða þín er. Ef við uppfærum trúnaðaryfirlýsinguna þannig að hún hafi veruleg áhrif á þig látum við þig vita af breytingunum áður en nýjar aðgerðir fara í gang.

Hugtök sem við notum í þessari trúnaðaryfirlýsingu

„Ferð“ þýðir hinar ýmsu ferðatengdu vörur og þjónusta ferðaþjónustunnar sem þú getur bókað, fengið, keypt, greitt fyrir, leigt, veitt, pantað, sameinað eða nýtt.

„Ferðaþjónusta“ á við aðila sem býður upp á gistingu (t.d. hótel, vegahótel, íbúð, gistiheimili, leigusala), afþreyingu (t.d. (skemmti)garða, söfn, skoðunarferðir), samgöngur (t.d. bílaleigur, skemmtisiglingar, lestarferðir, flugferðir, rútuferðir, för), ferðaskrifstofur, ferðatryggingar, og allar aðrar ferðatengdar vörur eða -þjónustu sem eru öðru hverju í boði til ferðabókunar á vettvanginum.

„Ferðaþjónusta“ á við netverslun, -pöntun, -greiðsluþjónustu eða -bókunarþjónustu sem Booking.com býður eða sér um varðandi mismunandi vörur og þjónustu sem ferðaþjónustur á vettvanginum bjóða öðru hverju upp á.

„Ferðabókun“ á við pöntun, kaup, greiðslu eða bókun á ferð.


Hvers konar persónuupplýsingum safnar Booking.com?

Við getum ekki aðstoðað þig við að bóka ferð drauma þinna án upplýsinga frá þér. Við biðjum því um ákveðnar upplýsingar þegar þú nýtir þér þjónustu okkar. Þessar upplýsingar eru allar frekar staðlaðar – nafn þitt, tengiliðsupplýsingar, nöfn samferðalanga ef við á og greiðsluupplýsingar. Þú getur einnig valið að setja inn viðbótarupplýsingar tengdar ferðinni í vændum (t.d. áætlaðan komutíma þinn).

Einnig söfnum við upplýsingum frá tölvunni þinni, símanum, spjaldtölvunni eða öðru tæki sem þú notar til að nýta þjónustuna okkar. Undir upplýsingarnar falla IP-tala, vafrinn sem þú notar og tungumálastillingar. Það koma einnig upp aðstæður þar sem við tökum við upplýsingum um þig frá öðrum eða við söfnum sjálfkrafa saman annars konar upplýsingum.

Þetta er staðlað yfirlit yfir þær upplýsingar sem við söfnum en ef þú vilt vita meira þá förum við nánar í saumana á þeim hér fyrir neðan.

Lesa meira um persónuupplýsingarnar sem við söfnum

Af hverju safnar og notar Booking.com persónuupplýsingar þínar?

Aðalástæða þess að við biðjum þig um persónuupplýsingar er að það hjálpar okkur við að hafa umsjón með ferðabókunum þínum á netinu og tryggja að þú fáir bestu mögulegu þjónustu.

Við notum einnig persónuupplýsingar þínar til að hafa samband við þig og upplýsa þig um ný og sérstök tilboð og aðrar vörur og þjónustu sem við teljum að þú gætir haft áhuga á. Það eru líka fleiri ástæður. Ef þú vilt komast að því hverjar þær eru skaltu lesa áfram til að fá nánari upplýsingar um það.

Lesa meira um ástæður þess að Booking.com safnar persónuupplýsingum þínum

Hvernig deilir Booking.com gögnum þínum með þriðja aðila?

Mismunandi aðilar koma að þjónustu Booking.com á ýmsa vegu og af ólíkum ástæðum. Meginástæðan er að deila ferðagögnum þínum með ferðaþjónustunni til að ljúka við ferðabókunina.

Við deilum þeim einnig með aðilum á okkar vegum sem sjá þér fyrir þjónustu Booking.com. Þar má nefna fjármálastofnanir, auglýsendur, dótturfyrirtæki Booking.com-fyrirtækjasamstæðunnar og önnur fyrirtæki Booking Holdings Inc.-fyrirtækjasamstæðunnar. Eða í sumum tilfellum, ef okkur er það skylt samkvæmt gildandi lögum, miðlum við gögnum þínum til stjórnvalda eða annarra yfirvalda.

Hér fyrir neðan förum við nánar í saumana á því hvernig við notum og deilum gögnum þínum með þessum aðilum.

Lesa meira um það hvernig gögnum er deilt með þriðja aðila

Hvernig er persónuupplýsingum þínum deilt innan fyrirtækjasamstæðunnar Booking Holdings Inc.?

Booking.com er hluti af fyrirtækjasamstæðunni Booking Holdings Inc.. Lestu áfram til að fá að vita meira um það hvernig gögnum er deilt innan fyrirtækjasamstæðunnar Booking Holdings Inc.

Lesa meira um gögn innan Booking Holdings Inc.

Hvernig er persónuupplýsingum þínum deilt og unnið nánar úr þeim fyrir akstursþjónustu?

Booking.com og Rentalcars.com – sem einnig eru hluti af fyrirtækjasamstæðunni Booking Holdings Inc. – samnýta persónuupplýsingar þínar til þess að bjóða þér akstursþjónustu í gegnum vefsíður og öpp Booking.com (eins og cars.booking.com eða taxi.booking.com). Lestu áfram til að skilja betur gildissvið og takmarkað eðli sameiginlegrar ábyrgðar okkar.

Lesa meira um persónuupplýsingar og akstursþjónustu okkar

Hvernig er persónuupplýsingum þínum deilt og unnið nánar úr þeim fyrir tryggingaþjónustu?

Við vinnum með mismunandi aðilum þegar boðin er tryggingaþjónusta. Farðu á hlekkinn hér að neðan til að skilja hvernig gögn þín eru notuð og þeim miðlað í tryggingamálum og kynntu þér ábyrgð viðkomandi aðila.

Lesa meira um gögn og tryggingavörur og -þjónustu

Hvernig vinnur Booking.com úr samskiptum sem þú og ferðaþjónustan gætuð átt í gegnum Booking.com?

Booking.com getur hjálpað þér og ferðaþjónustunni við að skiptast á upplýsingum eða beiðnum um þjónustu og ferðabókanir sem gerðar hafa verið, í gegnum vettvang Booking.com. Ef þú vilt vita meira um hvernig Booking.com tekur við og meðhöndlar samskiptin skaltu lesa áfram.

Lesa meira um gögn og tryggingavörur og -þjónustu

Hvernig nýtir Booking.com snjalltæki?

Við bjóðum upp á ókeypis öpp en gegnum þau söfnum við saman og vinnum úr persónuupplýsingum. Þau virka á svipaðan hátt og vefsíðan okkar en þau bjóða þér einnig að nota staðsetningarþjónustuna sem er til staðar í snjalltæki/-tækjum þínum.

Lesa meira um það hvernig við notum gögn úr snjalltækjum

Hvernig nýtir Booking.com samfélagsmiðla?

Notkun samfélagsmiðla getur verið samþætt þjónustu Booking.com á mismunandi máta. Það felur í sér að við söfnum einhverjum persónuupplýsingum þínum eða þá að samfélagsmiðillinn tekur við einhverjum upplýsingum þínum. Við notum ekki WhatsApp eða svipaða þjónustu þriðja aðila til að óska eftir staðfestingum á bókun eða greiðslu.

Lesa meira um hvernig við notum upplýsingar af samfélagsmiðlum

Hvaða öryggis- og varðveisluráðstafanir gerir Booking.com til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þinna?

Við fylgjum ýmsum verkferlum til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang að og misnotkun á persónuupplýsingum sem við vinnum úr.

Lestu meira um öryggis- og varðveisluráðstafanir

Hvernig meðhöndlar Booking.com persónuupplýsingar barna?

Nema annað sé tekið fram er Booking.com þjónusta sem þér er einungis heimilt að nýta ef þú ert 18 ára eða eldri. Við vinnum aðeins úr upplýsingum um börn með leyfi foreldra eða forráðamanna eða þegar foreldrar eða forráðamenn deila sjálfir þessum upplýsingum með okkar.

Lesa meira um persónuupplýsingar barna yngri en 18 ára

Hvernig getur þú stjórnað þeim persónuupplýsingum sem þú hefur gefið Booking.com?

Þú hefur meðal annars rétt á að fara yfir persónuupplýsingarnar sem við geymum um þig hvenær sem er og biðja um aðgang að eða eyðingu á persónuupplýsingunum þínum með því að senda inn þetta eyðublað. Ef þú vilt vita meira um réttindi þín til að stjórna persónuupplýsingum þínum skaltu lesa áfram.

Lesa meira um hvernig þú getur haft stjórn yfir persónuupplýsingum þínum

Hver ábyrgist vinnslu persónuupplýsinga á vefsíðu og öppum Booking.com?

Booking.com B.V. er staðsett í Amsterdam, Hollandi, og stjórnar úrvinnslu persónuupplýsinga til þess að veita þjónustu sína. Til þess teljast vefsíður þess og öpp í snjalltækjum, nema í sumum undantekningartilfellum sem eru tilgreind í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Lesa meira um ábyrgð Booking.com B.V. á persónuupplýsingum

Ákvæði eftir löndum

Við gætum þurft að veita viðbótarupplýsingar, eftir því hvaða lög gilda um þig. Ef slíkt á við finnurðu frekari upplýsingar um þitt land eða svæði hér á eftir.

Lesa meira um ákvæði eftir löndum


Hvers konar persónuupplýsingum safnar Booking.com?

Þú ert sem sagt að leita að frekari upplýsingum. Hérna færðu betri yfirsýn yfir þær upplýsingar sem við söfnum.

Persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té.

Booking.com safnar og notar upplýsingar sem þú lætur okkur í té. Þegar þú gengur frá ferðabókun ert þú (í það minnsta) beðin(n) um nafn þitt og netfang.

Það veltur á ferðabókun þinni, en við gætum einnig beðið þig um heimilisfang, símanúmer, greiðsluupplýsingar, fæðingardag, núverandi staðsetningu (ef um er að ræða þjónustu eftir þörfum) nöfn gesta sem ferðast með þér og séróskir, séu þær einhverjar (svo sem mataræði og aðgengisþarfir). Í sumum tilfellum er hægt að innrita sig á netinu hjá ferðaþjónustunni, og þá biðjum við þig að veita upplýsingar um vegabréf eða ökuskírteini og undirskriftir.

Ef þú þarft að ná sambandi við starfsfólk þjónustuvers okkar, hafa samband við ferðaþjónustuna í gegnum okkur eða hafa samband við okkur með öðrum hætti (eins og í gegnum samfélagsmiðla eða spjallmenni) söfnum við líka upplýsingum um þig þá. Það á við hvort sem þú ert að hafa samband við okkur til að gefa álit þitt eða fá hjálp við að nota þjónustu okkar.

Þér gæti einnig verið boðið að skrifa umsagnir til að láta aðra vita hvernig þú upplifðir ferðina. Þegar þú skrifar umsögn á vettvangi Booking.com söfnum við öllum upplýsingum sem þú lætur fylgja með, ásamt fornafni þínu og notandamynd (ef þú hefur valið þér slíka).

Einnig veitir þú okkur upplýsingar í öðrum tilfellum. Ef þú ert til dæmis að vafra í snjalltæki getur þú leyft Booking.com að sjá staðsetningu þína eða veitt aðgang að einhverjum tengiliðsupplýsingum. Það hjálpar okkur að veita þér okkar allra bestu þjónustu og upplifun, t.d. að sýna þér leiðarvísinn okkar að borginni, veitinga- og ferðamannastaðina sem eru næstir þér og annað sem við mælum með.

Ef þú býrð til notandasvæði vistum við líka persónulegar stillingar þínar, myndir sem þú hefur hlaðið upp og umsagnir um fyrri bókanir þar. Þessar vistuðu upplýsingar er hægt að nota til að hjálpa þér að skipuleggja og hafa umsjón með framtíðarferðabókunum eða nýta aðra eiginleika sem eru aðeins í boði fyrir þá sem eiga svæði (svo sem hvata og önnur fríðindi).

Einnig er hægt að velja að bæta upplýsingum úr persónuskilríkjunum þínum við notandasvæðin þín svo að þú þurfir ekki að senda þessar upplýsingar inn fyrir hverja og eina ferðabókun.

Við gætum boðið þér að taka þátt í tilvísunarprógrömmum eða happdrættum og þátttaka í þeim þýðir að þú verður að láta okkur í té persónuupplýsingar.

Persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té um aðra.

Ef þú ert með Booking.com for Business-svæði getur þú haldið heimilisfangaskrá þar til að auðvelda þér skipulagningu og umsjón með viðskiptaferðum annarra.

Í einhverjum tilfellum gætir þú notað Booking.com til að deila upplýsingum með öðrum. Til dæmis með því að deila óskalista eða taka þátt í tilvísunarprógrömmum, eins og lýst er þegar þú notar viðkomandi eiginleika.

Á þessari stundu þykir okkur hinsvegar rétt að benda á að það er á þína ábyrgð að sá einstaklingur eða einstaklingar sem þú hefur deilt persónuupplýsingum um séu meðvitaðir um það og að þeir skilji hvernig Booking.com notar upplýsingar þeirra (eins og útskýrt er í þessari persónuverndaryfirlýsingu).

Persónuupplýsingar sem við söfnum sjálfvirkt.

Hvort sem þú endar á því að bóka ferð eða ekki söfnum við ákveðnum upplýsingum sjálfvirkt þegar þú heimsækir vefsíður okkar eða öpp. Þessar upplýsingar geta verið IP-talan þín, dagsetning og tími heimsóknar á síðuna og upplýsingar um vélbúnað og hugbúnað tölvunnar þinnar (svo sem stýrikerfið, vafrinn sem þú notar, upplýsingar um útgáfu forrita/appa og tungumálastillingar þínar. Við gætum einnig safnað upplýsingum um smelli og hvaða síður þér hafa verið sýndar.

Ef þú ert að nota snjalltæki söfnum við gögnum sem auðkenna snjalltækið þitt og um sérstillingar tækisins og einkenni þess, bilanir í öppum og aðra kerfistengda virkni. Þegar þú framkvæmir ferðabókun í slíku tæki skráir kerfið okkar með hvaða hætti (á hvaða vefsíðum) þú bókaðir og/eða af hvaða vefsíðum þú fórst inn á vefsíðu eða app Booking.com.

Persónuupplýsingar sem við fáum frá öðrum aðilum.

Þetta snýst ekki aðeins um það sem þú segir okkur. Það kann að vera að við fáum einnig upplýsingar um þig frá öðrum aðilum. Það geta verið viðskiptafélagar, eins og samstarfsaðilar, dótturfélög Booking.com-fyrirtækjasamstæðunnar, önnur félög innan Booking Holdings Inc.-samstæðunnar eða aðrir sjálfstæðir utanaðkomandi aðilar.

Allar upplýsingar sem við fáum frá þessum samstarfsaðilum geta verið sameinaðar upplýsingum sem þú veitir. Til dæmis er bókunarþjónusta Booking.com ekki aðeins í boði á Booking.com og í öppum Booking.com heldur er hún líka hluti af þjónustu samstarfsaðila sem þú finnur á netinu. Þegar þú notar einhverja slíka þjónustu ert þú að gefa viðskiptafélögum okkar bókunarupplýsingar þínar en þeir áframsenda síðan upplýsingarnar til okkar.

Við nýtum okkur einnig þjónustu utanaðkomandi aðila til að einfalda greiðsluferlið á milli þín og ferðaþjónustuaðila. Þessir þjónustuaðilar deila greiðsluupplýsingum þannig að við getum framkvæmt og gengið frá ferðabókun þinni.

Auk þess söfnum við upplýsingum ef upp kemur sú leiðinlega staða að við fáum kvörtun um þig frá ferðaþjónustuaðila, til dæmis vegna misferlis.

Önnur leið sem við gætum fengið upplýsingar um þig í gegnum væri í gegnum samskiptaþjónusturnar sem eru innbyggðar í vettvanga okkar. Þessar samskiptaþjónustur gera þér kleift að hafa samband við ferðaþjónustuna sem þú bókaðir hjá til að ræða um dvölina. Í sumum tilvikum fáum við gögn um þessi samskipti (svo sem hver þú ert, hvaðan þú hringdir og dagsetningu og lengd símtalsins).

Við gætum einnig fengið upplýsingar til þess að sýna þér auglýsingar sem eru sniðnar að þér, svo sem viðbótargögn úr fótsporum sem Booking.com hefur fengið aðgang að hjá samskiptamiðlum sem það starfar með. Lestu hlutann Af hverju safnar og notar Booking.com persónuupplýsingar þínar? til að fá meiri upplýsingar.

Þegar þú tengir svæðið þitt hjá Booking.com við svæðið þitt á samskiptamiðlunum gætir þú sett á stað upplýsingaskipti á milli Booking.com og viðkomandi samskiptamiðils. Þú hefur alltaf þann valkost að deila ekki þessum upplýsingum.

Ferðaþjónustuaðilar gætu einnig deilt upplýsingum um þig með Booking.com. Það gæti t.d. gerst ef þú þarft aðstoð varðandi bókun sem er í vændum eða ef véfenging eða önnur vandamál koma upp varðandi ferðabókun.


Af hverju safnar og notar Booking.com persónuupplýsingar þínar?

Við notum upplýsingarnar sem við söfnum um þig í ýmsum tilgangi. Persónuupplýsingar þínar geta verið nýttar á eftirfarandi hátt:

  1. Ferðabókanir: Fyrst og fremst notum við persónuupplýsingar um þig til að framkvæma og halda utan um ferðabókun þína á netinu, sem er lykilatriði fyrir okkur til að þjónusta þig. Slíkt á einnig við um samskipti við þig varðandi ferðabókunina þína, til dæmis staðfestingar (meðal annars, þar sem við á, að senda þér kvittun fyrir kaupum og/eða greiðslu), breytingar og áminningar. Í sumum tilfellum getur einnig falist í þessu vinnsla á persónuupplýsingum þínum svo þú getir innritað þig hjá ferðaþjónustunni á netinu eða vinna úr persónuupplýsingum í tengslum við hugsanlega tjónatryggingu.

  2. Þjónustuver: Við bjóðum upp á alþjóðlegt þjónustuver á svæðisbundnum skrifstofum okkar á fleiri en 20 tungumálum og við erum til staðar allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Með því að deila viðeigandi upplýsingum um þig, svo sem bókunarupplýsingum eða upplýsingum um notandasvæðið þitt, með starfsfólki alþjóðlega þjónustuversins okkar getum við svarað þér þegar þú þarft á því að halda. Það getur t.d. verið til að hjálpa þér að finna hentugan ferðaþjónustuaðila eða til að svara spurningum sem þú kannt að hafa um ferðabókun þína (og allar aðrar fyrirspurnir, ef út í það er farið).

  3. Stillingar svæðis: Notendur Booking.com geta búið til notandasvæði á vefsíðum okkar eða öppum. Við notum upplýsingarnar sem þú gefur okkur til að hafa umsjón með þessu svæði, sem gerir þér kleift að gera ýmislegt gagnlegt. Þú getur haft umsjón með ferðabókunum þínum, nýtt þér sértilboð, bókað ferðir fram í tímann á einfaldan hátt og haft umsjón með persónulegu stillingunum þínum.

    Með því að hafa umsjón með persónulegum stillingunum þínum getur þú geymt og deilt listum, deilt myndum, séð ferðaþjónustu sem þú hefur leitað að áður á einfaldan hátt og skoðað aðrar ferðatengdar upplýsingar sem þú hefur gefið upp. Þú getur einnig séð allar umsagnir sem þú hefur sent inn.

    Ef þú vilt getur þú deilt ákveðnum upplýsingum á notandasvæðinu þínu með því að búa til opinberan prófíl sem tengist annað hvort fornafni þínu eða skjánafni sem þú velur. Ef þú ert skráð(ur) inn á svæðið þitt og vilt búa til viðskiptasvæði kunnum við að nota nafn þitt og netfang til að fylla út skráningareyðublaðið fyrirfram.

    Ef þú ert með svæði á Booking.com for Business getur þú einnig vistað tengiliðaupplýsingar í stillingum þess svæðis, haft umsjón með viðskiptabókunum og tengt aðra notendur við Booking.com Business-svæðið.

  4. Hópar á netinu: Við gætum gert notendum með notandasvæði kleift að tengjast og eiga samskipti sín á milli í gegnum nethópa eða spjallborð.

  5. Markaðsstörf: Við notum einnig upplýsingar þínar í markaðstilgangi. Það getur t.d. verið eftirfarandi:

    1. Með því að nota tengiliðsupplýsingar þínar og (safnað með vafrakökum og svipaðri rakningartækni) samskipti þín við vettvang Booking.com sendum við þér persónuleg markaðssetningarskilaboð (til dæmis með push-tilkynningum eða tölvupósti) frá Booking.com, þar á meðal kynningartilboð, skilaboð leitaraðstoðar, Genius og aðrar umbunir, ferðaupplifanir, kannanir og uppfærslur um vörur og þjónustu Booking.com. Þú getur sagt upp áskrift að þessum auglýsingapóstum á einfaldan og fljótlegan hátt hvenær sem er. Þú þarft bara að smella á hlekkinn „Segja upp áskrift“ sem fylgir með hverju fréttabréfi eða öðrum samskiptum eða stjórna kjörstillingunum þínum gegnum svæðisstillingarnar þínar.

    2. Á grundvelli upplýsinganna sem við höfum um þig á vettvangi Booking.com (safnað í gegnum vafrakökur og svipaðri rakningartækni) verða þér mögulega sýnd sérsniðin kynningartilboð, skilaboð leitaraðstoðar, Genius og aðrar umbanir, ferðaupplifanir, kannanir og uppfærslur um vörur og þjónustu Booking.com á vefsíðu Booking.com, snjallsímaöppum eða vefsíðum/öppum utanaðkomandi aðila (þar á meðal samfélagsmiðlum) og efni síðunnar sem birtist þér gæti verið sérsniðið að þér. Þetta kunna að vera tilboð sem þú getur bókað beint á vefsíðu Booking.com eða á sammerktum síðum eða tilboð eða vörur utanaðkomandi aðila sem við höldum að þú gætir haft áhuga á.

    3. Þegar þú tekur þátt í annarri kynningarstarfsemi (eins og getraunum, tilvísunarkerfum eða keppnum) notum við aðeins þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að framkvæma þessar kynningar.

  6. Samskipti við þig: Stundum kunnum við að hafa samband við þig með tölvupósti, tilkynningum, í síma eða með smáskilaboðum og/eða meðhöndla skilaboð sem þú sendir okkur.

    Það eru ýmsar ástæður fyrir þessu. Til dæmis:

    1. Við svörum og meðhöndlum beiðnir sem þú eða ferðaþjónustan sem þú bókaðir hjá hefur sent. Booking.com býður viðskiptavinum og ferðaþjónustuaðilum ýmsar leiðir til að skiptast á upplýsingum, beiðnum og athugasemdum um ferðaþjónustuaðila og ferðabókanir sem hafa verið gerðar í gegnum Booking.com. Til að fá frekari upplýsingar skaltu lesa kaflann sem heitir „Hvernig vinnur Booking.com úr samskiptum sem þú og ferðaþjónustan sendið gegnum Booking.com?“.

    2. Ef þú hefur byrjað en ekki lokið leit að ferð eða bókun á netinu gætum við haft samband við þig til að bjóða þér að halda áfram með leit þína eða bókun. Við trúum því að þessi aukaþjónusta sé gagnleg fyrir þig þar sem þú getur haldið áfram með bókunina á sama stað í ferlinu án þess að þurfa að leita að ferðaþjónustuaðila eða fylla út bókunarupplýsingarnar aftur.

    3. Þegar þú nýtir þér þjónustu okkar getur verið að við sendum þér könnun eða bjóðum þér að skilja eftir umsögn um upplifun þína á Booking.com eða hjá ferðaþjónustunni.

    4. Við sendum þér einnig annað efni tengt ferðabókunum þínum á borð við upplýsingar um það hvernig þú hefur samband við Booking.com ef þú þarft aðstoð á meðan þú ert á ferðinni og upplýsingar sem við teljum að gætu verið gagnlegar fyrir þig við undirbúning ferðarinnar eða varðandi það að fá sem mest út úr henni. Við sendum þér einnig mögulega efni tengt komandi ferðabókunum eða samantekt á fyrri ferðabókunum sem þú gerðir í gegnum Booking.com.

    5. Jafnvel þótt þú sért ekki með ferðabókun á dagskrá gætum við samt þurft að senda þér önnur skilaboð sem gætu t.d. innihaldið öryggistilkynningar.

    6. Við misferli sendum við þér hugsanlega tilkynningu og/eða viðvörun.

  7. Markaðsrannsóknir: Stundum bjóðum við viðskiptavinum okkar að taka þátt í markaðsrannsóknum. Vinsamlegast lestu upplýsingarnar sem eru veittar þegar þér er boðið að taka þátt til að sjá hvaða persónuupplýsingum er safnað og hvernig þær eru notaðar.

  8. Betrumbætur á þjónustu okkar: Við notum persónuupplýsingar í greiningarskyni og til að bæta vörur okkar, til dæmis með því að bjóða upp á upplifun sem er sniðin að því hvernig þú notar vettvanginn okkar til að bóka valinn gististað hjá okkur. Ennfremur kunna persónuupplýsingar þínar að vera notaðar til að þróa og bæta vélnámslíkön okkar og gervigreindartól. Þetta er hluti af viðleitni okkar til að bæta þjónustu okkar og upplifun notenda.

    Í því tilviki notum við upplýsingar í prófunartilgangi, fyrir bilanaleit og til að búa til tölfæðileg gögn um fyrirtækið okkar. Helsta markmiðið með þessu er að fá frammistöðugögn um þjónustu okkar, upplýsingar um hvernig hún er notuð og síðast en ekki síst að bæta og sérsníða vefsíðu okkar og öpp og gera þau auðveldari í notkun og gagnlegri. Eftir því sem kostur er notum við eingöngu nafnlausar og ópersónugreinanlegar persónuupplýsingar í þessari greiningarvinnu.

  9. Við bjóðum besta verðið sem á við um þig, eftir staðsetningu þinni: Þegar þú leitar í appi eða á vefsíðum okkar, til dæmis til þess að finna gistiþjónustu, bílaleigubíl eða flug, vinnum við úr IP-tölu þinni til þessa að staðfesta hvort þú sért á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) eða í öðru landi. Við gerum þetta til þess að bjóða þér besta verðið fyrir svæðið (EES) eða landið (ekki EES-landi) þar sem þú býrð.

  10. Gestaumsagnir og aðrar upplýsingar tengdar áfangastöðum: Á meðan á ferð þinni stendur og eftir að henni lýkur færð þú mögulega boð um að senda inn umsögn. Við getum einnig boðið þeim sem ferðast með þér eða þú hefur bókað fyrir að skrifa umsögn í staðinn. Í þessu boði felst mögulega beiðni um upplýsingar um ferðaþjónustuna eða áfangastaðinn.

    Ef þú ert með Booking.com-svæði getur þú valið að birta skjánafn hjá umsögninni þinni í stað raunverulegs nafns. Ef þú vilt búa til skjánafn fyrir þig getur þú gert það í stillingum svæðisins. Einnig er hægt að bæta við notandamynd.

    Með því að ljúka við gestaumsögn samþykkir þú að hana megi birta (líkt og er lýst nákvæmlega í Skilmálum og skilyrðum okkar) t.d. á upplýsingasíðu viðkomandi ferðaþjónustuaðila á síðum okkar, í snjallsímaöppum, á svæðum okkar á samfélagsmiðlum og samfélagsmiðlaöppum, eða á vefsíðu viðkomandi ferðaþjónustuaðila eða vefsíðu viðskipafélaga. Þetta er í þeim tilgangi að segja öðrum ferðalöngum frá gæðum ferðaþjónustunnar sem þú nýttir, áfangastöðunum sem þú valdir eða öðrum upplifunum sem þú velur að segja frá.

  11. Eftirlit með símtölum: Þegar þú hringir í þjónustuver okkar notar Booking.com sjálfvirkt kerfi sem greinir símanúmerið þitt til að tengja það við gerðar bókanir. Þetta getur sparað tíma fyrir bæði þig og starfsfólk í þjónustuveri okkar. Starfsfólk þjónustuvers okkar gæti samt beðið um auðkenningu, til að tryggja að bókunarupplýsingar þínar haldist leynilegar.

    Á meðan á símtölum við starfsfólk okkar stendur gæti átt sér stað hlustun eða símtöl gætu verið hljóðrituð og notuð í gæðastjórnunar- og þjálfunartilgangi. Undir það fellur notkun upptaknanna í þeim tilgangi að meðhöndla kvartanir, lagalegar kröfur og hafa eftirlit með svikum.

    Við tökum ekki upp öll símtöl. Ef símtal er tekið upp er það geymt takmarkaðan tíma áður en því er sjálfkrafa eytt. Þannig er þetta gert nema við höfum ákveðið að nauðsynlegt sé að geyma upptöku vegna rannsókna á svikum eða í lagalegum tilgangi. Lesa má meira um það hér að neðan.

  12. Efling öruggrar og áreiðanlegrar þjónustu: Til þess að skapa áreiðanlegt umhverfi fyrir þig, samferðafólk þitt, viðskiptafélaga Booking.com og ferðaþjónstuaðila greinum við stöðugt tilteknar persónuupplýsingar í þeim tilgangi að finna og koma í veg fyrir svik og aðra ólöglega eða óæskilega starfsemi.

    Á sama hátt notum við persónuupplýsingar við áhættumat og af öryggisástæðum, meðal annars til að tilkynna um áhyggjur af öryggi eða til að sannreyna að notendur og bókanir séu raunveruleg. Í slíkum athugunum gætum við þurft að stöðva eða setja ákveðnar ferðabókanir í bið þangað til við höfum lokið matinu.

  13. Lagalegur tilgangur: Að lokum gætum við þurft, við ákveðnar aðstæður, að nota upplýsingar um þig til að afgreiða og leysa lagalegar kröfur og ágreiningsefni, vegna eftirlits og reglufylgni, til að framfylgja notkunarskilmálum netbókunarþjónustu Booking.com eða til að verða við lögmætum beiðnum frá löggæsluyfirvöldum. Ennfremur kunnum við að vinna úr notandaauðkenni þínu, sem tengt er netfanginu sem notað var til að búa til svæðið þitt, í bókhaldslegum tilgangi eins og krafist er í reglugerð um stafræna markaði.

    Þér er í sjálfsvald sett hvort þú gefur Booking.com upp persónuupplýsingar þínar. Sumar tegundir þjónustu getum við þó mögulega aðeins veitt þér með því að safna vissum persónuupplýsingum. Við getum t.d. ekki afgreitt ferðabókunina þína ef við skráum ekki nafnið þitt og tengiliðsupplýsingar.

    Ef við notum sjálfvirkar aðferðir við að vinna úr persónuupplýsingum sem hafa lagalegar afleiðingar eða einnig veruleg áhrif á þig munum við gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja réttindi þín og frelsi. Þ.m.t. rétt á að manneskja grípi inn í.

Til að meðhöndla persónuupplýsingarnar þínar eins og lýst er hér fyrir ofan berum við fyrir okkur eftirfarandi lagagrundvöll:

Í ljósi tilgangs A og B reiðir Booking.com sig á þann lagalega grundvöll að úrvinnsla persónuupplýsinganna þinna sé nauðsynleg til að framfylgja samningi, nánar tiltekið að ganga frá og framkvæma ferðabókunina þína.

Ef persónuupplýsingarnar sem beðið er um eru ekki gefnar upp getur Booking.com ekki gengið frá ferðabókuninni og við getum ekki veitt þjónustu í þjónustuveri. Í ljósi tilgangs C til L reiðir Booking.com (eða þriðji aðili) sig á lögmæta viðskiptahagsmuni sína til að veita og bæta þjónustu og til að koma í veg fyrir svik og aðra ólögmæta þjónustu (sem útlistað er nákvæmar í liðum C og L).

Þegar Booking.com notar persónuupplýsingar til að gæta lögmætra hagsmuna sinna eða þriðja aðila mun Booking.com alltaf vega og meta réttindi þín og hagsmuni í persónuvernd þinni gegn réttindum og hagsmunum Booking.com eða þriðja aðila. Í tilgangi M reiðir Booking.com sig einnig, þar sem við á, á það að uppfylla lagalegar skyldur (svo sem lögmætar löggæslubeiðnir).

Að lokum skal nefna að þegar gildandi lög krefjast þess mun Booking.com biðja um samþykki þitt (eða á annan hátt eins og lög kveða á um) áður en persónuupplýsingarnar þínar eru notaðar, m.a. við notkun fótspora eða svipaðrar rakningartækni og markaðssetningarskilaboða.

Ef þú vilt andmæla notkuninni sem var lýst í C til L og engin aðferð er í boði fyrir þig til að hafna henni beint (t.d. í markaðssetningartölvupóstum eða svæðisstillingum) skaltu hafa samband við okkur á netfangið dataprotectionoffice@booking.com eða fara í eyðublaðið.


Hvernig deilir Booking.com gögnum þínum með þriðja aðila?

Við ákveðnar kringumstæður deilum við persónuupplýsingum þínum með þriðju aðilum. Þessir þriðju aðilar eru meðal annars:

  1. Ferðaþjónustuaðilinn sem þú bókaðir hjá: Til þess að ljúka við ferðabókunina þína sendum við viðeigandi bókunarupplýsingar til ferðaþjónustuaðilans sem þú bókaðir hjá. Þetta er eitt af því mikilvægasta sem við gerum fyrir þig.

    Það veltur á ferðabókuninni og ferðaþjónustuaðilanum en þessar upplýsingar gætu innihaldið nafn þitt, tengiliðsupplýsingar, greiðsluupplýsingar, nöfn einstaklinga sem eru að ferðast með þér og allar aðrar upplýsingar eða séróskir sem þú tilgreindir þegar þú bókaðir ferðina.

    Í vissum tilvikum veitum við ferðaþjónustunni einnig viðbótarupplýsingar um þína sögu. Það gætu til dæmis verið upplýsingar um hvort þú hafir bókað þar áður, hversu margar bókanir þú hafir nýtt hjá Booking.com, staðfesting á að ekkert misferli hafi verið tilkynnt varðandi þig, hlutfall fyrri bókana sem þú hefur afpantað eða hvort þú hafir skrifað umsagnir um fyrri bókanir.

    Ef þú hefur spurningu um ferðina þína höfum við mögulega samband við ferðaþjónustuna og biðjum viðkomandi um að sjá um beiðnina. Sé greiðsla ekki framkvæmd í bókunarferlinu í gegnum vefsíðu Booking.com sendum við kreditkortaupplýsingar þínar áfram til ferðaþjónustunnar sem þú bókaðir hjá (að því gefnu að þú hafir gefið okkur þessar upplýsingar í bókunarferlinu).

    Ef upp kemur deila eða ágreiningur í tengslum við ferðabókun veitum við mögulega ferðaþjónustuaðilanum tengiliðsupplýsingar þínar og aðrar upplýsingar um bókunarferlið eftir því sem þarf til þess að leysa úr aðstæðum. Þar á meðal en takmarkast ekki við netfang og afrit af staðfestri pöntun sem sönnun þess að ferðabókun fór fram eða til að staðfesta ástæður fyrir afpöntun.

    Til að ljúka málinu mun þjónustuaðilinn vinna enn frekar persónuupplýsingar þínar án þess að Booking.com ráði nokkru þar um. Þjónustuaðilar kunna að fara fram á frekari persónuupplýsingar, t.d. til að veita frekari þjónustu eða til að framfylgja gildandi takmörkunum. Ef persónuverndaryfirlýsing ferðaþjónustunnar er tiltæk skaltu lesa hana til að öðlast skilning á úrvinnslu persónuupplýsinga þinna.

  2. Tengingaraðilar Athugaðu að sumir ferðaþjónustuaðilar geta knúið okkur til að miðla persónuupplýsingum þínum til tengingaraðila til að geta lokið við og séð um pöntun þína. Tengingaraðilar koma fram af hálfu ferðaþjónustuaðila og aðstoða við að halda utan um pantanir sínar.

  3. Skrifstofa Booking.com á þínu svæði: Til þess að styðja við þjónustu Booking.com gæti upplýsingum um þig verið deilt með dótturfyrirtækjum fyrirtækjasamstæðu Booking.com, til dæmis til þjónustuveri. Nánari upplýsingar um fyrirtækjasamstæðu Booking.com er að finna á síðunni Um Booking.com.

  4. Utanaðkomandi þjónustuaðilar: Við nýtum okkur þjónustu fyrirtækja sem ekki eru hluti af fyrirtækjasamstæðu Booking.com en hjálpa okkur við að veita okkar þjónustu. M.a. er um að ræða:

    • Þjónustu við viðskiptavini

    • Markaðsrannsóknir

    • Eftirlit með svikum og ráðstafanir til að koma í veg fyrir þau (þ.á.m. skimun til varnar svikum)

    • Tryggingakröfur

    • Greiðsluþjónustu

      Við notum þriðju aðila til að sjá um greiðslur, meðhöndla bakfærslukröfur eða sjá um innheimtu reikninga. Þegar bakfærslukröfur eru gerðar fyrir ferðabókun þína, annaðhvort af þér eða korthafa þess kreditkorts sem notað er við bókunina, þurfum við að deila ákveðnum bókunarupplýsingum með greiðsluþjónustuaðilanum og viðeigandi fjármálastofnun svo að þessir aðilar geti meðhöndlað bakfærslukröfuna. Þetta gætu verið afrit af bókunarstaðfestingunni þinni eða IP-tala tölvunnar sem notuð var við bókunina. Jafnframt gætum við deilt upplýsingum með tengdum fjármálastofnunum ef við teljum það bráðnauðsynlegt til að hafa eftirlit með eða fyrirbyggja svik.

      Þegar bakfærslukröfur eru gerðar fyrir ferðabókun þína, annaðhvort af þér eða korthafa þess kreditkorts sem notað er við bókunina, þurfum við að deila ákveðnum bókunarupplýsingum með greiðsluþjónustuaðilanum og viðeigandi fjármálastofnun svo að þessir aðilar geti meðhöndlað bakfærslukröfuna. Þetta gætu verið afrit af bókunarstaðfestingunni þinni eða IP-tala tölvunnar sem notuð var við bókunina.

      Jafnframt gætum við deilt upplýsingum með tengdum fjármálastofnunum ef við teljum það bráðnauðsynlegt til að hafa eftirlit með eða fyrirbyggja svik.

    • Markaðssetningarþjónustu

      Við deilum persónuupplýsingum, m.a. netfanginu þínu, með auglýsingasamstarfsaðilum sem hluta af utanaðkomandi markaðssetningarþjónustu (til að tryggja að viðeigandi auglýsingar birtist réttum markhópi). Við notum tækni eins og tætingu (e. hashing) til að hægt sé að finna netfang þitt í gagnagrunni viðskiptavina til að koma í veg fyrir að netfangið þitt verði notað í öðrum tilgangi. Nánari upplýsingar um aðrar sérsniðnar auglýsingar og valkosti þína er að finna í hlutanum Fótsporsyfirlýsing.

    • Auglýsingasamstarfsaðilar

      Við notum auglýsingasamstarfsaðila, til dæmis meta-leitarrásir, svo að þú getir borið tilboð okkar saman við tilboð annarra ferðaskrifstofa á netinu. Þegar þú bókar á Booking.com eftir að hafa notað auglýsingasamstarfsaðila sendum við upplýsingar um bókunina sem þú framkvæmdir á Booking.com til þess samstarfsaðila.

  5. Aðrir faglegir þriðju aðilar: Í einhverjum tilvikum (svo sem við ágreining eða réttarkröfur eða sem hluti af endurskoðun) þurfum við hugsanlega að deila persónuupplýsingunum þínum með ráðgjöfum. Þessir ráðgjafar eru meðal annars aðilar á borð við lögfræðistofur eða endurskoðendur. Við deilum persónuupplýsingunum þínum aðeins að því marki sem er nauðsynlegt og þessir þriðju aðilar vinna úr þessum upplýsingum í samræmi við faglegar skyldur sínar.

  6. Lögbær yfirvöld: Við deilum persónuupplýsingum með löggæsluaðilum þegar þess er krafist samkvæmt lögum eða þegar það reynist nauðsynlegt til að fyrirbyggja, koma upp um eða sækja til saka glæpsamlega hegðun eða svik. Við þurfum hugsanlega að deila persónuupplýsingum með lögbærum yfirvöldum (þ.m.t. skattayfirvöldum og bæjarstjórnum) til að fara að lagalegum skuldbindingum (til dæmis samkvæmt lögum um skammtímaleigu), til að verja réttindi okkar og eignir eða réttindi og eignir viðskiptafélaga okkar.

  7. Viðskiptafélagar: Við störfum með mörgum viðskiptafélögum um allan heim. Þessir viðskiptafélagar dreifa og auglýsa þjónustu Booking.com, þ.m.t. þjónustu og vörur ferðaþjónustuaðilanna okkar.

    Þegar þú gengur frá bókun á vefsíðu eða appi einhvers viðskiptafélaga okkar verða ��kveðnar persónuupplýsingar, svo sem nafn þitt, netfang, heimilisfang, greiðsluupplýsingar og aðrar upplýsingar sem við eiga, áframsendar til okkar svo við getum gengið frá og framkvæmt ferðabókunina þína.

    Ef viðskiptafélagi veitir stoðþjónustu mun Booking.com deila upplýsingum sem tengdar eru bókun þinni með honum (ef og þegar þess er þörf) til að sjá þér fyrir viðeigandi og gagnlegri þjónustu.

    Þegar þú bókar í gegnum vefsíðu einhvers viðskiptafélaga okkar mun viðkomandi fá ákveðinn hluta persónuupplýsinga þinna sem tengist viðeigandi bókun og viðskiptum þínum við þessar vefsíður viðskiptafélaga. Það er gert í viðskiptalegum tilgangi.

    Þegar þú framkvæmir bókun á vefsíðum viðskiptafélaga skalt þú taka þér tíma í að lesa yfir persónuverndaryfirlýsingu þeirra ef þú kýst að vita hvernig viðskiptafélagarnir kunna að nota persónuupplýsingar þínar. Ef þú kýst að nýta þér réttindi þín sem skráður aðili hjá viðskiptafélögum okkar kunnum við að koma að málum til að tryggja viðeigandi svar við beiðni þinni.

    Til að hafa eftirlit með og koma í veg fyrir svik getum við einnig skipst á upplýsingum um notendur okkar við viðskiptafélaga – en aðeins þegar algerlega nauðsynlegt reynist.

    Ef lögð er fram tryggingakrafa varðandi þig og ferðaþjónustu veitum við tryggingafyrirtækinu hugsanlega nauðsynleg gögn (m.a. persónuupplýsingar) til frekari vinnslu.

    • Tilboð frá samstarfsaðila: Hugsanlega kynnum við þér „tilboð frá samstarfsaðila“. Þegar þú bókar dvöl sem merkt er „tilboð frá samstarfsaðila“ gerir ferðaþjónustuaðilinn pöntunina mögulega, en hann er annar en gistiþjónustan sem þú pantar. Hluti af bókunarferlinu er að við þurfum að deila viðeigandi persónuupplýsingum með þessum viðskiptafélaga.

      Ef þú bókar tilboð frá samstarfsaðila skaltu athuga upplýsingarnar sem veittar eru í bókunarferlinu eða athuga bókunarstaðfestinguna þína til að fá frekari upplýsingar um umsjónaraðila ferðarinnar og hvernig hann vinnur úr persónuupplýsingum.

  8. Booking Holdings Inc.-samstæðan: Kannaðu hvernig við miðlum persónuupplýsingum þínum innan fyrirtækjasamstæðunnar Booking Holdings Inc.

Booking.com er alþjóðlegur rekstur. Upplýsingar sem við söfnum um þig, eins og fram kemur í persónuverndaryfirlýsingunni, kunna að verða aðgengilegar, fluttar til eða geymdar í löndum þar sem ekki gilda sömu persónuverndarlög og í landinu sem þú gafst upplýsingarnar upphaflega í. Í slíkum tilfellum verndum við gögn þín eins og fram kemur í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Þetta gæti einnig gilt ef þú ert innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Í löndum sem upplýsingar þínar eru fluttar til kunna að gilda lög sem veita ekki eins mikla vernd um persónuupplýsingar og lög gera innan EES. Þar sem svo háttar til grípum við til viðeigandi öryggisráðstafana til að tryggja að þessi gagnaflutningur fylgi persónuverndarlögum í Evrópu.

Einkum þegar gögnin þín eru flutt til utanaðkomandi þjónustuaðila, setjum við upp viðeigandi samnings-, tæknileg og skipulagsleg úrræði hjá þeim. Það er gert með því að koma á stöðluðum samningsákvæðum sem Evrópuráðið hefur samþykkt með því að rannsaka lönd sem gögnin kunna að hafa verið flutt til og með því að koma á sérstökum tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum.

Í tilteknum sértækum tilvikum flytjum við gögnin þín út fyrir EES af því að það er þinn hagur eða nauðsyn til að ljúka við eða framfylgja samningi milli okkar og þín. Þegar þú bókar á Booking.com eða í gegnum viðskiptafélaga gætum við þurft að flytja gögn þín til ferðaþjónustuaðila eða viðskiptafélaga sem staðsettur er utan EES.

Þú getur óskað eftir að fá að sjá afrit af innleiddum öryggisráðstöfunum okkar (eftir því sem hægt er) með því að hafa samband við okkur á netfangið dataprotectionoffice@booking.com.


Hvernig er persónuupplýsingum þínum deilt innan fyrirtækjasamstæðunnar Booking Holdings Inc.?

Booking.com er hluti af fyrirtækjasamstæðunni Booking Holdings Inc.. Hægt er að fá meiri upplýsingar hjá Bookingholdings.com.

Við gætum fengið persónuupplýsingar um þig frá öðrum fyrirtækjum innan fyrirtækjasamstæðunnar Booking Holdings Inc. eða deilt persónuupplýsingunum þínum með þeim í eftirfarandi tilgangi:

  1. Að veita þjónustu (þ.á.m. að framkvæma, afgreiða og hafa umsjón með bókunum eða sjá um greiðslur)

  2. Að veita viðskiptavinum stoðþjónustu

  3. Að hafa eftirlit með, koma í veg fyrir og rannsaka sviksamlega og aðra ólögmæta starfsemi og öryggisbrot

  4. Í greiningar- og vörubætingartilgangi

  5. Að veita sérsniðin tilboð eða senda þér markaðsefni með þínu leyfi eða eins og heimilt er samkvæmt gildandi lögum

  6. Fyrir hýsingu, tækniaðstoð, almennt viðhald og til þess að gæta öryggis slíkra upplýsinga sem deilt hefur verið

  7. Að tryggja að farið sé eftir gildandi lögum

Í tilgangi A til F eins og við á, nema annað sé tekið fram, reiðir Booking.com sig á lögmæta hagsmuni sína til að deila og taka við persónuupplýsingum. Í tilgangi G reiðir Booking.com sig, þar sem við á, á það að uppfylla lagalegar skyldur (svo sem lögmætar löggæslubeiðnir).

Booking.com vinnur t.a.m. náið með Rentalcars.com í þeim tilgangi að bjóða viðskiptavinum sínum landsamgöngur. Lestu „Hvernig er persónuupplýsingunum þínum deilt og unnið nánar úr þeim fyrir akstursþjónustu?“ til að fá nánari upplýsingar.

Öll fyrirtæki innan Booking Holdings Inc.-samstæðunnar gætu þurft að skiptast á persónuupplýsingum viðskiptavina til að tryggja að allir notendur séu verndaðir fyrir sviksamlegri starfsemi á vettvöngum hennar á netinu.


Hvernig er persónuupplýsingum þínum deilt og unnið nánar úr þeim fyrir akstursþjónustu?

Booking.com Transport Limited sem er í viðskiptum sem Rentalcars.com er einkahlutafélag sem fellur undir bresk lög og er með skrifstofur á 6 Goods Yard Street, Manchester, M3 3BG.

Booking.com og Rentalcars.com (sem bæði eru hluti af fyrirtækjasamstæðunni Booking Holdings Inc.) starfa náið saman að því að bjóða þér akstursþjónustu í gegnum vefsíður og öpp Booking.com, eins og cars.booking.com eða taxi.booking.com.

Vefsíður og öpp Booking.com bjóða upp á akstursþjónustu sem Rentalcars.com rekur undir Booking.com vörumerkinu. Í því felst að þegar þú bókar eða leitar að akstursþjónustu í gegnum appið eða vefsíðuna bera Booking.com og Rentalcars.com sameiginlega ábyrgð á söfnun og notkun persónuupplýsinga þinna.

Auk upplýsinganna sem við vinnum úr til þess að þú getir leitað að aktstursþjónustu og bókað, geta fyrirtækin Booking.com og Rentalcars.com einnig notað persónuupplýsingar þínar óháð hvort öðru. Það er í samræmi við tilganginn sem kemur fram í Persónuverndaryfirlýsingu þessari og frá Rentalcars.com.

Þú getur alltaf haft samband við Booking.com til þess að fá nánari upplýsingar um sambandið á milli Booking.com og Rentalcars.com og til þess að nýta þér rétt þinn varðandi persónuupplýsingar þínar sem safnað er í gegnum vefsíður og öpp Booking.com. Þú getur gert það í gegnum netfangið undir hlutanum „Hver ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga hjá Booking.com og hvernig er hægt að hafa samband við okkur?“.


Hvernig er persónuupplýsingum þínum deilt og unnið nánar úr þeim fyrir tryggingaþjónustu?

Booking.com Distribution B.V. er systurfyrirtæki Booking.com með skráðar skrifstofur að Oosterdokskade 163, 1011 DL, Amsterdam, Hollandi. Booking.com og Booking.com Distribution B.V. vinna náið saman að því að bjóða viðskiptavinum mismunandi tryggingar og þjónustu við ferðabókanir, t.d. tryggingar vegna afbókana á herbergjum.

Tryggingatilboðin geta kallað að marga aðila, svo sem milliliði, vátryggjendur og aðra fulltrúa. Þar sem Booking.com Distribution B.V. kemur að málum verður það í hlutverki milliliðs og fulltrúa eða tilnefnds fulltrúa (eftir umdæmum) fyrir hönd vátryggjanda með því að bjóða viðskiptavinum Booking.com tryggingar og tryggingaþjónustu.

Farðu yfir upplýsingarnar sem komu fram við bókunina til að fá að vita meira um Booking.com Distribution B.V og þá aðila sem vinna með Booking.com að því að bjóða þessar vörur og þjónustu. Upplýsingar um vátryggjandann birtast í tryggingaskilmálum og skyldu efni fyrir þig.

Þegar Booking.com og Booking.com Distribution B.V. bjóða þér tryggingar geta þau þurft að nota og miðla persónuupplýsingum sem snúa að tryggingunni. Þessar upplýsingar eiga við um þig sem væntanlegan eða raunverulegan tryggingataka, rétthafa samkvæmt skilmálum, fjölskyldumeðlimi, kröfuhafa og aðra aðila sem eru aðilar að kröfu:

  • Til að bjóða, koma á tryggingavernd og sjá um tryggingakröfur getur þurft að miðla til Booking.com Distribution B.V. persónuupplýsingum sem við fáum við bókun („Almennar pöntunarupplýsingar“). Einnig má vera að þú verðir beðin/n um að veita viðbótarupplýsingar, svo sem nöfn á fjölskyldumeðlimum eða öðrum rétthöfum eða upplýsingar um kröfu („sérupplýsingar um tryggingar“).

  • Ef þú leggur fram kröfu samkvæmt tryggingaskilmálum má vera að vátryggjandi sjái beint um þessa kröfu. Það þýðir að þú verðir beðin/n að veita persónuupplýsingar til að senda kröfuna beint til hans. Vátryggjandinn upplýsir þig þar um þegar tekið er við upplýsingunum frá þér. Þegar vátryggjandi sér um kröfu þína má vera að Booking.com fái upplýsingar um stöðu kröfu þinnar til að þú getir fengið viðskiptaþjónustu.

Þegar Booking.com Distribution B.V. kemur fram sem milliliður um tryggingar og tryggingaþjónustu gegnum Booking.com, bera fyrirtækin tvö sameiginlega ábyrgð á söfnun sérupplýsinga um tryggingar og að senda þær frá Booking.com til Booking.com Distribution B.V. Booking.com Distribution B.V. kemur samt fram sem eini gagnastjórinn að hvers kyns vinnslu utan við kerfi Booking.com B.V.. Hvers kyns persónuupplýsingar sem Booking.com safnar vegna trygginga verða unnar eins og fram kemur í Persónuverndaryfirlýsingu þessari.

Til þess að fá nánari upplýsingar um sambandið á milli Booking.com og Booking.com Distribution B.V. og til þess að nýta þér rétt þinn varðandi persónuupplýsingar sem safnað er í gegnum vefsíður og öpp Booking.com skaltu hafa samband við okkur.

Hvernig vinnur Booking.com úr skilaboðum milli þín og ferðaþjónustunnar sem þú bókaðir hjá sem send eru í gegnum Booking.com?

Booking.com getur boðið þér og ferðaþjónustunni upp á mismunandi leiðir til að eiga samskipti um gistiþjónustuna og ferðabókanir þínar og beint samskiptunum í gegnum Booking.com. Það gerir þér og ferðaþjónustunni kleift að hafa samband við Booking.com með spurningar um ferðabókunina þína í gegnum vefsíðuna, öppin okkar og aðrar leiðir sem við bjóðum upp á.

Booking.com hefur aðgang að samskiptum og gæti notað sjálfvirk kerfi til að fara yfir, skanna og greina samskipti í eftirfarandi tilgangi:

  • Öryggistilgangi

  • Til að koma í veg fyrir svik

  • Til að hlíta lögum og reglugerðum

  • Rannsóknir á mögulegu misferli

  • Vöruþróun og -umbætur

  • Rannsóknir

  • Samskipti við viðskiptavini (þar með talið að veita þér upplýsingar og segja þér frá tilboðum sem við höldum að þú gætir haft áhuga á)

  • Þjónusta við viðskiptavini eða tæknileg aðstoð

Við áskiljum okkur rétt til þess að hindra afhendingu á eða fara yfir samskipti sem við teljum að geti verið með meinfýsilegt innihald, geti verið amapóstur eða sem við teljum að þér, ferðaþjónustuaðilum, Booking.com eða öðrum geti staðið ógn af.

Öll samskipti sem eru send eða móttekin í gegnum samskiptatól Booking.com verða móttekin og vistuð af Booking.com. Ferðaþjónustuaðilar og viðskiptafélagar sem þú gerðir ferðabókun hjá gætu einnig kosið að hafa bein samskipti við þig í gegnum tölvupóst eða aðrar leiðir sem Booking.com hefur enga umsjón með.


Hvernig nýtir Booking.com snjalltæki?

Við bjóðum upp á ókeypis öpp fyrir alls konar snjalltæki ásamt útfærslum af vefsíðu okkar sem hafa verið lagaðar að leit í snjallsímum og spjaldtölvum.

Þessi öpp og snjalltækjavefsíður vinna úr persónuupplýsingunum sem þú gefur okkur á svipaðan hátt og vefsíðan okkar. Þau gera þér einnig kleift að nota staðsetningarþjónustu til að finna ferðaþjónustu í nágrenninu, ef þú kýst það.

Við getum sent þér tilkynningar með þínu leyfi, með upplýsingum um ferðabókunina þína. Þú getur einnig gefið okkur aðgang að staðsetningu þinni eða tengiliðsupplýsingum til að gera okkur kleift að veita þjónustu sem þú hefur óskað eftir. Ef þú setur myndir inn á vettvang okkar gætu myndirnar auk þess innihaldið staðsetningarupplýsingar (svokölluð lýsigögn). Lestu leiðbeiningarnar í snjalltækinu þínu um það hvernig hægt er að breyta stillingum þínum og hafa umsjón með deilingu slíkra upplýsinga.

Þegar þú kýst að nota „talgervil“ okkar til að leita uppi þjónustu okkar eða sjá um bókanir þínar breytir utanaðkomandi þjónustuaðili tali þínu í órekjanlegan texta. Þú þarft að veita okkur aðgang að hljóðnema tækisins til að nota þessa aðgerð.

Við notum mögulega svokallaða „rakningu á milli ólíkra tækja“ til þess að gera þjónustuna og markaðsstarfsemina sem besta og tryggja að notendaupplifunin sé alltaf sú sama. Þetta getur verið gert með eða án notkunar á fótsporum (cookies). Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um fótspor eða aðra svipaða tækni bendum við á fótsporayfirlýsinguna okkar.

Með því að notast við rakningu á milli tækja getur Booking.com rakið aðgerðir notanda á fjölmörgum mismunandi tækjum. Við krossrakningu á milli tækja tengjum við hugsanlega upplýsingar, sem safnað er frá tilteknum vafra eða farsíma, við upplýsingar frá annarri tölvu eða tæki sem sami notandi notar.

Til þess að gera efni í fréttabréfum Booking.com sem best tengir Booking.com saman leitir og bókanir sem þú gerðir úr öðrum tölvum og tækjum. Þú getur sagt upp áskrift að fréttabréfi Booking.com hvenær sem er.

Hægt er að sérsníða þær auglýsingar sem þér eru sýndar á öðrum vefsíðum eða öppum eftir virkni þinni í tengdum tölvum og tækjum. Með því að breyta fótsporastillingum í tækinu þínu (sjá fótsporayfirlýsinguna okkar undir „Hverjir eru valkostir þínir?“) getur þú breytt stillingum fyrir rakningu á milli tækja í auglýsingatilgangi. Við tökum fram að þótt þú skráir þig út af notandasvæðinu þínu á Booking.com þýðir það ekki að þú fáir ekki lengur sérsniðnar auglýsingar.


Hvernig nýtir Booking.com samfélagsmiðla?

Við notum samfélagsmiðla á mismunandi vegu hér hjá Booking.com. Við notum þá til að auðvelda notkun á bókunarþjónustu á netinu en jafnframt til að koma ferðatengdum vörum og þjónustu ferðaþjónustuaðilanna okkar á framfæri og til að auglýsa, bæta og flýta fyrir þjónustu okkar.

Athugaðu að notkun á samfélagsmiðlaeiginleikum getur orðið til þess að Booking.com og viðkomandi samfélagsmiðill skiptist á pesónuupplýsingum þínum, eins og lýst er hér fyrir neðan. Þér er frjálst að nota ekki þá samfélagsmiðlaeiginleika sem þú hefur aðgang að.

  1. Skráðu þig inn með innskráningarupplýsingum samfélagsmiðlasvæðis þíns. Við gefum þér kost á að skrá þig inn á notandasvæði á Booking.com með einu af samfélagsmiðlasvæðum þínum. Það er til þess að þú þurfir ekki að muna eins mörg ólík notandanöfn og lykilorð fyrir mismunandi netþjónustur.

    Eftir að þú hefur skráð þig inn einu sinni getur þú notað samfélagsmiðlasvæði þitt til að skrá þig inn á Booking.com-svæðið þitt. Þú getur hvenær sem er aftengt notandasvæðið þitt á Booking.com frá samfélagsmiðlasvæðinu sem þú valdir ef þú vilt.

  2. Innbyggðar samfélagsmiðlaviðbætur. Við höfum sett innbyggðar samfélagsmiðlaviðbætur á vefsíðu Booking.com og öpp. Það þýðir að þegar þú smellir eða dumpar á einn af hnöppunum (eins og Facebook-þumalinn) er ákveðnum upplýsingum deilt með þessum samskiptamiðlum.

    Ef þú ert innskráð(ur) á samfélagsmiðla þegar smellt er á eða dumpað á einn þessara hnappa gæti samfélagsmiðillinn tengt þessar upplýsingar við samfélagsmiðlasvæði þitt. Samfélagsmiðillinn gæti einnig sýnt þessar aðgerðir á síðunni þinni á samfélagsmiðlinum þannig að þeir sem eru tengdir þér á samfélagsmiðlinum gætu séð þær.

  3. Önnur þjónusta og aðrir eiginleikar samfélagsmiðla. Við kunnum jafnframt að samþætta aðra þjónustu samfélagsmiðla (eins og skilaboðaþjónustu) til að þú getir átt samskipti við Booking.com eða tengiliði þína varðandi þjónustu okkar.

    Einnig kunnum við að halda úti samfélagsmiðlasvæðum og bjóða öpp á einhverjum samfélagsmiðlum. Hvenær sem þú tengist Booking.com í gegnum samfélagsmiðla kann samfélagsmiðillinn að leyfa þér að deila upplýsingum með okkur.

    Ef þú kýst að miðla upplýsingum lætur samfélagsmiðillinn þig vita hvaða upplýsingum verður miðlað. Ef þú t.d. skráir þig inn á notandasvæði Booking.com með því að nota samfélagsmiðla verður tilteknum upplýsingum þar miðlað til Booking.com. Þar er meðtalið netfang, aldur þinn og prófílmyndir sem þú hefur vistað – eftir því hvað þú hefur leyft á samfélagsmiðlunum.

Þegar þú skráir þig á samfélagsmiðlaappi Booking.com eða tengist skilaboðaþjónustu samfélagsmiðla án þess að vera með svæði á Booking.com gætu upplýsingarnar sem þú kýst að deila með okkur til dæmis verið almennar upplýsingar sem aðgengilegar eru á samfélagsmiðlasvæði þínu (t.d. netfang, stöðuuppfærslur og tengiliðir).

Við notum þessar upplýsingar til að sjá þér fyrir þeirri þjónustu sem þú hefur óskað eftir – eins og t.d. að áframsenda skilaboð sem þú vilt senda til tengiliða eða til að búa til sérsniðna notendaupplifun í appinu sjálfu eða á vefsíðum okkar. Þetta þýðir að ef þú vilt getum við sniðið þjónustu okkar að þínum þörfum, upplýst þig og vini þína um bestu áfangastaðina og gert greiningu á og bætt ferðatengda þjónustu okkar. Hafðu í huga að við notum ekki WhatsApp eða svipaða þjónustu þriðja aðila til að óska eftir staðfestingum á bókun eða greiðslu. Ef þér berast til dæmis skilaboð í WhatsApp þar sem þú ert beðin(n) um að fara inn á hlekk til að tryggja bókun þína eða ljúka tengdri greiðslu skaltu ekki svara skilaboðunum eða fara inn á hlekkinn. Þess í stað biðjum við þig um að tilkynna starfsfólki þjónustuversins okkar um skilaboðin.

Samfélagsmiðillinn sem þú notar getur sagt þér meira um það hvernig hann notar og vinnur úr upplýsingum þínum þegar þú tengist við Booking.com í gegnum samfélagsmiðilinn. Það gæti til dæmis falist í því að sameina persónuupplýsingar sem samfélagsmiðillinn safnar þegar þú notar Booking.com í gegnum hann og upplýsingar sem hann safnar þegar þú notar aðra vettvanga á netinu sem þú hefur einnig tengt við svæðið þitt á samfélagsmiðlinum.

Ef þú velur að nota svæðið þítt á Facebook eða Google til að skrá þig inn skaltu smella á eftirfarandi hlekki til fá upplýsingar um það hvernig þessir aðilar nota gögnin sem þeir fá: Facebook og Google.


Hvaða öryggis- og varðveisluráðstafanir gerir Booking.com til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þinna?

Við fylgjum ákveðnum verkferlum til að koma í veg fyrir óheimilan aðgang að og misnotkun á persónuupplýsingum.

Við notum viðeigandi rekstrarkerfi og verkferla til að vernda persónuupplýsingarnar þínar. Við notum einnig öryggisverklag ásamt tæknilegum og sýnilegum takmörkunum til þess að fá aðgang að og nota persónuupplýsingarnar á vefþjónum okkar. Aðeins starfsfólki með leyfi er heimilt að fá aðgang að persónuupplýsingum í starfi sínu.

Við geymum persónuupplýsingar þínar eins lengi og nauðsynlegt er til að gera þér kleift að nýta þér þjónustu okkar, gera okkur kleift að veita þér þjónustuna (þ.m.t. að viðhalda hvers kyns notendasvæði á Booking.com sem þú kannt að eiga), framfylgja viðeigandi lögum, leysa deilur við aðra aðila og eftir því sem nauðsynlegt er til að rekstur fyrirtækisins geti haldið áfram, þ.á.m. til að hafa eftirlit með og fyrirbyggja svik og/eða aðra ólögmæta starfsemi. Allar persónuupplýsingar, sem við geymum um þig sem viðskiptavin Booking.com, falla undir þessa Persónuverndaryfirlýsingu.

Til að bæta öryggi mælum við eindregið með því að þú setjir upp tveggja skrefa auðkenningu á notandasvæði þínu á Booking.com. Það bætir við einu auðkenningarskrefi til viðbótar til að tryggja að engir aðilar sem komast yfir notandanafn og lykilorð þitt (t.d. í gegnum vefveiðar („phishing“) eða samfélagsmiðlablekkingar) geti komist inn á svæðið þitt. Þú getur sett þetta upp í öryggisstillingum svæðisins þíns.


Hvernig meðhöndlar Booking.com persónuupplýsingar barna?

Þjónusta okkar er ekki ætluð fyrir börn undir 18 ára aldri og við munum aldrei safna upplýsingum um þau nema foreldri eða forráðamaður láti þær af hendi (og samþykki slíka söfnun). Takmarkaðar aðstæður þar sem við gætum þurft að safna persónuupplýsingum um börn undir 18 ára aldri eru m.a. vegna hluta bókunar, kaupa á annarri ferðatengdri þjónustu eða vegna annarra undantekningartilfella (svo sem vegna eiginleika sem beint er til fjölskyldna). Við ítrekum að þessar upplýsingar verða eingöngu notaðar og þeim safnað ef foreldri eða forráðamaður lætur þær af hendi og samþykkir slíka söfnun.

Ef við verðum þess vör að við höfum unnið úr upplýsingum um barn undir 18 ára aldri án samþykkis foreldris eða forráðamanns eyðum við þeim.


Hvernig getur þú stjórnað þeim persónuupplýsingum sem þú hefur gefið Booking.com?

Við viljum að þú hafir stjórn á því hvernig við notum persónuupplýsingar þínar. Þú getur gert það á eftirfarandi hátt:

  1. Við viljum að þú hafir stjórn á því hvernig við notum persónuupplýsingar þínar. Þú getur gert það á eftirfarandi hátt:

  2. Þú getur beðið okkur um afrit af persónuupplýsingum sem við höfum um þig,

  3. þú getur upplýst okkur um allar breytingar sem verða á persónuupplýsingum þínum eða þú getur beðið okkur um að leiðrétta persónuupplýsingarnar sem við höfum um þig. Eins og útskýrt er hér fyrir neðan getur þú gert einhverjar af þessum breytingum sjálf(ur) á netinu þegar þú ert með notandasvæði,

  4. í ákveðnum tilfellum getur þú beðið okkur um að eyða, stöðva eða takmarka vinnslu á persónuupplýsingunum sem við höfum um þig eða andmælt einstaka aðferðum sem við notum við vinnslu persónuupplýsinganna þinna,

  5. í ákveðnum tilfellum getur þú einnig beðið okkur um að senda persónuupplýsingarnar sem þú hefur gefið okkur til þriðja aðila,

  6. Þegar við notum persónuupplýsingarnar þínar á grundvelli samþykkis þíns hefur þú rétt á að afturkalla það samþykki hvenær sem er í samræmi við gildandi lög og

  7. Þegar við vinnum úr persónuupplýsingum þínum á grundvelli lögmætra hagsmuna eða almannahagsmuna hefur þú hvenær sem er rétt til að andmæla þeirri notkun í samræmi við gildandi lög.

Við treystum á að þú gætir þess að ekkert vanti í persónuupplýsingar þínar, þær séu réttar og ekki úreltar. Vinsamlegast gerðu okkur viðvart ef persónuupplýsingum þínum er breytt eða þær eru rangar á einhvern hátt, eins fljótt og hægt er.

Ef þú ert með notandasvæði á Booking.com getur þú nálgast heilmikið af persónuupplýsingum þínum í gegnum vefsíðuna/öppin okkar. Þér gefst yfirleitt möguleiki á því að bæta við, uppfæra eða fjarlægja upplýsingar sem við höfum um þig í svæðisstillingunum þínum.

Notendur með svæði hjá Booking.com geta einnig beðið um að við eyðum svæðinu þínu gegnum Booking.com-appið. Hafðu í huga að eiginleikar appsins geta verið mismunandi milli stýrikerfa og þjónustuveitenda þriðju aðila.

Ef einhverjar af þeim persónuupplýsingum sem við höfum um þig eru ekki aðgengilegar í gegnum vefsíðu okkar eða öpp getur þú sent okkur beiðni.

Ef þú vilt nýta rétt þinn til þess að fá aðgang að persónuupplýsingum þínum eða eyða þeim skaltu fylla út og senda inn eyðublaðið Beiðni skráðs aðila fyrir viðskiptavini Booking.com. Hafðu samband við okkur í gegnum persónuverndarfulltrúann okkar á netfangið dataprotectionoffice@booking.com ef þú vilt leggja fram beiðni varðandi þessa persónuverndaryfirlýsingu eða kvörtun eða vilt nýta þér einhvern annan rétt þinn. Þú getur einnig haft samband við persónuverndareftirlitið þar sem þú býrð.

Ef þú vilt andmæla því að unnið sé úr persónuupplýsingum þínum á grundvelli lögmætra hagsmuna og þú hefur enga beina leið til þess að neita þátttöku skaltu hafa samband við okkur á netfangið dataprotectionoffice@booking.com.

Viljirðu hafa samband með pósti skaltu beina honum á persónuverndarfulltrúa og nota eftirfarandi póstfang: Oosterdokskade 163, 1011 DL, Amsterdam, Hollandi.


Hver ber ábyrgð á meðhöndlun persónuupplýsinga í gegnum Booking.com og hvernig er hægt að hafa samband við okkur?

Booking.com B.V. ræður yfir úrvinnslu persónuupplýsinga eins og lýst er í þessari trúnaðaryfirlýsingu, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Booking.com B.V. er einkahlutafélag sem starfar eftir hollenskum lögum og er með skráðar skrifstofur við Oosterdokskade 163, 1011 DL Amsterdam, Hollandi.

Ef einhverjar spurningar vakna um þessa trúnaðaryfirlýsingu eða vinnslu persónuupplýsinga þinna getur þú haft samband við persónuverndarfulltrúa okkar á dataprotectionoffice@booking.com og við svörum þér eins fljótt og hægt er. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi bókun þína eða þú þarft á aðstoð þjónustuversins að halda geturðu smellt á þennan hlekk.

Ef þú ert með spurningar um bókunina þína getur þú haft samband við þjónustuverið okkar á þjónustuverssíðunni.

Innsending beiðna frá löggæsluaðilum skal fylgja ferli fyrir löggæslu.

Ákvæði eftir löndum

Við gætum þurft að veita viðbótarupplýsingar, eftir því hvaða lög gilda um þig. Ef slíkt á við finnurðu frekari upplýsingar um þitt land eða svæði hér á eftir.

Fyrir íbúa Bandaríkjanna

Ef þú býrð í Bandaríkjunum eiga upplýsingarnar í þessum hluta við um þig auk annars efnis í þessari persónuverndaryfirlýsingu. Í þessum hluta eru upplýsingar um tiltekin réttindi sem þú nýtur í ýmsum ríkjum Bandaríkjanna sem kunna að vera frábrugðin þeim réttindum sem lýst er annars staðar í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Flokkar persónuupplýsinga sem við kunnum að safna um þig eru, auk þeirra sem áður er getið í þessari trúnaðaryfirlýsingu:

  1. Staðsetningarupplýsingar (t.d. efnisleg staðsetning þín)

  2. Viðkvæm gögn (borgaraleg staða eða innflytjandastaða, gögn er varða kynþátt, þjóðernislegan uppruna, trúarskoðanir, greiningu á andlegum eða líkamlegum sjúkdómi eða kynhneigð – ef þú hefur afhent slík gögn)

  3. Afleiddar upplýsingar (t.d. tölfræðigreining og val þitt)

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um ofangreinda flokka, tilteknar tegundir persónuupplýsinga sem við söfnum eða í hvaða tilgangi við söfnum þeim skaltu lesa hlutana „Hvernig persónuupplýsingum safnar Booking.com?“ og „Af hverju safnar Booking.com og notar persónuupplýsingar þínar?“ í trúnaðaryfirlýsingunni okkar.

Lestu hlutana „Hvernig persónuupplýsingum safnar Booking.com?“ og „Hvernig deilir Booking.com gögnum frá þér með þriðja aðila?“ til að fá nánari upplýsingar um móttöku persónuupplýsinga frá og deilingu á þeim með viðskiptafélögum.

Hugsanlega deilum við tilteknum þáttum persónuupplýsinga með þriðju aðilum, sem kann að teljast til sölu á persónuupplýsingum samkvæmt persónuverndarlögum í ríkjum Bandaríkjanna. Þetta gætu verið upplýsingar sem tengjast afleiddum upplýsingum og greiningu. Við kunnum einnig að deila persónuupplýsingunum þínum með þjónustuveitum sem aðstoða okkur við að senda markaðsskilaboð eða birta auglýsingar.

Frekari upplýsingar um þetta er að finna í hlutanum „Hvernig deilir Booking.com gögnum frá þér með þriðja aðila?“ í trúnaðararyfirlýsingunni okkar.

Réttindi þín samkvæmt persónuverndarlögum eru meðal annars réttur til að fá aðgang að persónuupplýsingunum þínum, réttur til að leiðrétta persónuupplýsingarnar þínar, réttur til að biðja um að persónuupplýsingunum þínum verði eytt og réttur til að fá afrit af persónuupplýsingunum þínum. Persónuverndarlög í Bandaríkjunum veita þér tiltekin viðbótarréttindi sem fela í sér rétt til að hafna: sölu persónuupplýsinga þinna, miðuðum auglýsingar og gerð persónusniðs, sem kann að hafa lagaleg áhrif á þig.

Fylltu út þessa Beiðni skráðs aðila til að nýta þér rétt þinn til að biðja um aðgang að, fá afrit af og leiðrétta eða eyða persónuupplýsingum þínum. Til að afþakka sölu á persónuupplýsingum þínum, miðuðum auglýsingum eða gerð persónusniðs skaltu nota kjörstillingaflipann í sömu Beiðni skráðs aðila.

Hafðu samband ef þú vilt spyrja okkur um þessa trúnaðaaryfirlýsingu og starfshætti okkar eða nýta einhver af réttindum þínum með því að senda tölvupóst á netfangið dataprotectionoffice@booking.com með efnislínunni: „US Resident Privacy Rights - Request“.

Ef þú ert foreldri, lögráðamaður eða viðurkenndur fulltrúi neytanda og þú vilt nýta þér réttindi fyrir hönd neytanda skaltu hafa samband við okkur í netfanginu dataprotectionoffice@booking.com. Við gætum þurft að staðfesta hver þú ert áður en við afgreiðum réttindabeiðnina.

Þegar þú nýtir réttindi þín staðfestum við hver þú ert með því að athuga hvort nafnið og netfangið sem þú gafst upp í beiðninni samræmist upplýsingunum sem þú gafst upp þegar þú notaðir þjónustu okkar, auk annarra staðfestingarupplýsinga. Þú getur heimilað öðrum einstaklingi að nýta rétt til að hafna notkun persónuupplýsinga þinna fyrir þína hönd. Ef okkur berst slík beiðni sendum við þér tölvupóst til staðfestingar á því að beiðandinn hafi umboð þitt.

Þjónustu Booking.com er ekki beint til barna yngri en 18 ára. Þar af leiðandi safnar Booking.com ekki vísvitandi persónuupplýsingum ólögráða einstaklinga og við seljum ekki vísvitandi persónuupplýsingar þeirra án tilhlýðilegs samþykkis.

Bandaríkin – Tryggingapersónuverndaryfirlýsing

1. Kynning

Þessi persónuverndaryfirlýsing skýrir hvernig Booking.com B.V., hlutdeildarfélög, dótturfyrirtæki og systurfélög („Booking.com“) safna, nota og deila persónuupplýsingum þínum varðandi sölu tryggingarvara í Bandaríkjunum. Þar á meðal flokka persónuupplýsinga sem við vinnum úr og tilganginn með notkun þeirra. Í þessari tilkynningu má vera að vísað verði til Booking.com sem „við“, „okkur“, „okkar“ eða „Booking.com“.

Í Bandaríkjunum söfnum við yfirleitt persónuupplýsingum sem hluta af því að bjóða tryggingarvörur. Við komum ásamt vátryggjanda fram sem „ábyrgðaraðili gagna“ þar eð við erum hvert um sig ábyrgt fyrir að ákvarða hvernig farið verði með persónuupplýsingar okkar í viðkomandi rekstri. Ef þú þar af leiðandi deilir persónuupplýsingum með okkur í tengslum við kaup á tryggingum hvetjum við þig til að fara yfir bæði persónuverndaryfirlýsingu þessa og vátryggjandans til að skilja til fulls hvernig við förum með persónuupplýsingar þínar.

2. Á þessi kafli við þig?

Ef þú býrð í Bandaríkjunum og kaupir einhverja þjónustu eða vöru Booking.com, þar með taldar tryggingar, þá á þessi kafli við um þig, auk alls hins sem er í persónuverndaryfirlýsingu Booking.com. Athugaðu hið síðarnefnda ef þú ert með frekari spurningar eða vandamál varðandi meðferð Booking.com á persónuupplýsingum þínum.

Þessi tilkynning ásamt persónuverndaryfirlýsingu Booking.com á við um allar persónuupplýsingar sem þú veitir Booking.com og hvers kyns persónuupplýsingar sem við söfnum. Þar með talið þegar þú hefur samband við okkur, heimsækir eða notar vefsíður okkar eða forrit, heimsækir afgreiðslu Booking.com, sækir atburð eða námskeið á vegum Booking.com, biður um þjónustu okkar eða notar aðra þjónustu sem vísar til eða tengist þessari tilkynningu. Persónuupplýsingarnar sem við söfnum eru breytilegar eftir eðli þjónustu og trygginga sem þú ákveður endanlega að kaupa og hvernig þú átt samskipti við okkur. Hugsanlegt er að þessi tilkynning breytist eða fái frekari persónuverndaryfirlýsingu, skilmála eða tilkynningar sem eiga við um viðkomandi þjónustu og tryggingar sem keyptar voru. Við mælum með að heimsækja þessa síðu öðru hverju til að tryggja að þú vitir hvar þú stendur.

Þessi tilkynning veitir sérstaklega upplýsingar um hvernig persónuupplýsingum þínum er safnað og þær notaðar til að bjóða þér tryggingar í gegnum vettvanga Booking.com (auk vefsíðna Booking.com eða forrita sem og persónuupplýsinga sem þú veitir þegar þú hefur samband við Booking.com með tölvupósti, spjalli, síma eða pósti).

Þessi tilkynning á ekki við um notkun þína á síðum, vörum eða þjónustu þriðju aðila sem tengjast eða eru af vettvangi okkar.

3. Samþykki

Með því að kaupa eða nota tryggingar og þjónustu eða með því að staðfesta samþykki þitt samþykkirðu þessa tilkynningu og notkunarskilmála síðunnar, sem og Persónuverndaryfirlýsingu Booking.com. Ef þú samþykkir ekki þessa tilkynningu eða notkunarskilmála síðunnar skaltu ekki nota tryggingar og þjónustu sem Booking.com býður. Ekki skal nota tryggingarnar og þjónustuna innan nokkurs lands eða umdæmis, né skulu þær notaðar af neinum aðilum, þar sem slíkt myndi brjóta í bága við lög. Ef þetta á við um þig er þér óheimill aðgangur eða notkun hvers kyns trygginga eða þjónustu.

4. Ábyrgir aðilar

Aðilar Booking.com sem eru ábyrgir fyrir að bjóða tryggingavalkosti á ferðalögum þínum og fyrir vinnslu persónuupplýsinga þinna eru Booking.com B.V. og Booking.com Distribution Insurance Solutions, LLC („BDIS“).

Booking.com Distribution B.V. („BDBV“), er tilnefndur fyrirtækjaumsjónaraðili BDIS og er einkahlutafélag, hlutafélag samkvæmt hollenskum lögum með höfuðstöðvar að Oosterdokskade 163, 1011 DL, Amsterdam, Hollandi. Upplýsingar um vátryggjandann birtast þér í tryggingaskilmálum og skyldu efni þegar þú kaupir tryggingu.

BDIS sér um að úthluta tryggingum sem þú kaupir í tengslum við þarfir þínar á ferðalögum. BDIS er Delaware-hlutafélag skráð til að sjá um viðskipti í öllum fylkjum sem og í District of Columbia og er réttilega með leyfi sem vátryggjandi í öllum fylkjum auk District of Columbia. BDIS er með starfsleyfi í Connecticut, með skrifstofur í Connecticut á 800 Connecticut Ave, Norwalk, CT 06854. Starfsleyfi BDIS í Connecticut er 3002601274.

Þar sem BDIS er dreifingaraðilinn sem býður viðskiptavinum Booking.com sem búa í Bandaríkjunum tryggingar og þjónustu kemur það fram sem dreifingaraðili gagna varðandi vinnslu sem fram fer utan kerfa Booking.com. B.V. Booking.com er dreifingaraðili gagna fyrir hvers kyns persónuupplýsingar sem það safnar vegna trygginga. Lýsing á úrvinnslu Booking.com á þeim gögnum kemur fram í þessari persónuverndaryfirlýsingu og í aðalpersónuverndaryfirlýsingu Booking.com. Ef þessi kafli stangast á við annað í aðalpersónuverndaryfirlýsingu Booking.com skal þessi kafli vera ráðandi. Til að fá nánari upplýsingar um samband á milli Booking.com og BDIS skal hafa samband við okkur.

5. Nánar um það hvaða persónuupplýsingar við þurfum frá þér

Hugtakið „persónuupplýsingar“ vísar til upplýsinga sem nota má til að greina eða rekja auðkenni þitt, annað hvort einar sér eða sameinaðar upplýsingum sem tengjast þér eða tengja má við þig.

Persónuupplýsingarnar sem við söfnum eru breytilegar eftir eðli þjónustu okkar og trygginga sem þú ákveður að kaupa byggt á þörfum þínum. Þegar við söfnum viðkvæmum persónuupplýsingum (svo sem sérgreinanlegum upplýsingum eða sakaskrá) er þessum upplýsingum aðeins safnað þegar þær eru sérstaklega viðkomandi þjónustu sem við veitum og eru í samræmi við gildandi lög.

Persónuupplýsingarnar sem við söfnum um þig (eða sem þú hugsanlega veitir) geta m.a. verið eftirfarandi:

  • Einstaklingsupplýsingar: nafn, heimilisfang (og staðfesting á heimilisfangi), aðrar tengiliðsupplýsingar (t.d. netfang og símanúmer), kyn, hjúskaparstaða, fjölskylduhagir, fæðingardagur og -staður, atvinnu- eða ráðningarupplýsingar (t.d. vinnuveitandi og upplýsingar um viðskiptaferðalög, starfsheiti og ráðningarsaga), samband við tryggingataka, hinn vátryggða, tryggingarþega eða kröfuhafa, myndir, sjónrænar upplýsingar (t.d. hvers kyns ljósmyndir sem þú hleður upp á svæði þínu);

  • Einkvæmt auðkenni: auðkennistala gefin út af hinu opinbera (t.d. kennitala, vegabréfsnúmer, auðkennisnúmer, skattaauðkenni, númer ökuskírteinis);

  • Fjármálaupplýsingar: greiðslukortanúmer og -upplýsingar, númer og upplýsingar bankareikninga, tekjur og aðrar fjármálaupplýsingar;

  • Tryggingaáhætta: Upplýsingar um tryggingaáhættu, sem innihalda persónuupplýsingar og geta innihaldið, aðeins að því marki sem á við áhættuna sem tryggt er fyrir:

    • Heilsufarsupplýsingar: núverandi eða fyrra líkamlegt eða andlegt sjúkdómsástand, heilsufar, upplýsingar um áverka eða hreyfihömlun, framkvæmdar lækninsmeðferðir, viðkomandi ávani (t.d. reykingar eða áfengisneysla), upplýsingar um lyfjaávísanir, sjúkrasaga;

    • Sakaskrá: sakfellingar auk umferðarlagabrota; og

    • Aðrar sérstakar persónuupplýsingar: upplýsingar um kynþátt eða þjóðernisuppruna (til dæmis á vegabréfi eða skilríkjum sem notuð eru til að greina vegabréfs- eða skilríkjahafa);

  • Upplýsingar um tryggingar: upplýsingar um tilboð sem þú færð og tryggingar sem þú tekur;

  • Upplýsingar um lánshæfi og svik: lánasaga og lánshæfiseinkunn, upplýsingar um sakfellingu vegna svika, ásakanir um glæpi og refsiaðgerðir af ýmsum gagnagrunnum um svik og refsiaðgerðir, eftirlitsaðilar eða lögregluyfirvöld;

  • Fyrri kröfur: upplýsingar um fyrri kröfur, sem geta verið heilsufarsupplýsingar, sakaskrá og önnur sérstök tegund persónuupplýsinga (eins og kemur fram í skilgreiningu á tryggingaáhættu hér fyrir ofan);

  • Núverandi kröfur: upplýsingar um núverandi kröfur, sem geta verið heilsufarsupplýsingar, sakaskrá og önnur sérstök tegund persónuupplýsinga (eins og kemur fram í skilgreiningu á tryggingaáhættu hér fyrir ofan);

  • Markaðsupplýsingar: hvort einstaklingur hafi samþykkt að taka við markaðssetningu frá okkur og/eða frá þriðja aðilum og/eða markaðstilboðum; og

  • Vefsíðu- og samskiptanotkun: svo sem um notkun á interneti og öðru rafrænu neti, tölvu-, tækja- og tengingarupplýsingar (t.d. IP-tala, vafragerð, heiti léns, stýrikerfi, einkvæmt tækisauðkenni), upplýsingar um heimsóknir á vefsíður okkar eða öpp og upplýsingar fengnar með veffótsporum og annarri rakningartækni auk upplýsinga um umferð, staðsetningar, vefinnskráningar og aðrar samskiptaupplýsingar og úrræði sem þú nýtir þér.

  • Bakgrunnsupplýsingar: svo sem skráning á lista yfir refsiaðgerðir eða opinber listi yfir vanhæfa stjórnendur, tilvist fyrri eða meintra glæpa eða staðfesting hreinnar sakaskrár og upplýsingar í tengslum við einstaklinga í pólitískum áhættuhópi („PEPs“).

  • Afleiddar upplýsingar (t.d. tölfræðigreining og val þitt)

  • Athugasemdir, endurgjöf og aðrar upplýsingar sem við fáum : svo sem samskipti við okkur á samfélagsmiðlum, athugasemdir sem berast með álitsgjöfum eða skoðanakönnunum og spurningar eða upplýsingar sendar stuðningsþjónustu okkar.

6. Viðtakendur upplýsinga þinna

Hugsanlega deilum við tilteknum þáttum persónuupplýsinga með þriðju aðilum, sem kann að teljast til sölu á persónuupplýsingum samkvæmt persónuverndarlögum í fylkjum Bandaríkjanna. Þetta gætu verið upplýsingar sem tengjast afleiddum upplýsingum og greiningu. Við kunnum einnig að deila persónuupplýsingunum þínum með þjónustuveitum sem aðstoða okkur við að senda markaðsskilaboð eða birta auglýsingar.

Við deilum almennt persónuupplýsingum þínum með eftirfarandi flokkum viðtakenda þar sem nauðsynlegt er að bjóða, hafa umsjón með og sjá um tryggingar og þjónustu sem þér er veitt:

  • Vera má að við innan Booking.com: deilum persónuupplýsingum þínum með öðrum einingum, vörumerkjum, deildum, systurfélögum og dótturfyrirtækjum Booking.com vegna vinnslu eins og fram kemur í þessari tilkynningu;

  • Þátttakendur á tryggingamarkaði: þar sem nauðsynlegt er að bjóða, sjá um og stýra tryggingum og þjónustu sem þér er veitt, svo sem tryggingatakar og vátryggjendur, endurtryggjendur, fulltrúar, miðlarar, framleiðendur og fulltrúar tryggingafélagsins. Vátryggjandinn er tryggingatakinn sem undirritar tryggingayfirlýsinguna og er nefndur í tryggingaskírteininu. Sjá persónuverndaryfirlýsingu vátryggjandans á vefsíðu hans til að fá nánari upplýsingar um verklag við persónuvernd;

  • Prófunar- og áhættustýringarstofur: svo sem lánshæfismat, sakaskrá, hindrun svika, gagnakönnun og aðrar ráðgjafarstofur, þar sem þarf að hindra og uppgötva svik í tryggingageiranum og reyna að meta áhættu í tengslum við fyrirhugaða eða fyrirliggjandi tryggingaskilmála og -þjónustu;

  • Lögfræðingar, kröfufulltrúar og kröfurannsakendur: þar sem þarf að rannsaka, dæma um eða verja lagakröfur, tryggingakröfur eða aðrar kröfur svipaðs eðlis;

  • Heilbrigðisstarfsfólk: t.d. þar sem veittar eru heilsufarsupplýsingar í tengslum við kröfu gegn tryggingafélagi þínu;

  • Löggæsla: þar sem nauðsynlegt er til að stuðla að því að koma í veg fyrir eða koma upp um glæp eða handtaka eða sækja til saka lögbrjóta;

  • Hið opinbera, eftirlitsaðilar og ríkisstofnanir: þar sem við þurfum að uppfylla lagalegar skyldur og reglugerðir;

  • Þjónustuaðilar þriðju aðila: þar sem við úthýsum vinnslu til þjónustuaðila sem vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd. Þess konar vinnsla skal vera áfram undir okkar stjórn og skal framkvæma í samræmi við öryggisstaðla okkar og strangar reglur;

  • Arftakar fyrirtækja: þar sem Booking.com eða tryggingar og þjónusta eru seld til, yfirtekin af eða renna saman við aðra stofnun að öllu leyti eða að hluta til. Þar sem persónuupplýsingum er deilt við þessar kringumstæður verða þær notaðar áfram í samræmi við þessa tilkynningu;

  • Viðskiptafélagar: svo sem samrekstrareiningar, bakhjarlar og/eða aðrir viðskiptafélagar þriðja aðila sem vinna eða starfa með Booking.com að verkefnum, viðburðum, tryggingum eða þjónustu. Rétt er að kalla eftir nánari upplýsingum um verklag í persónuverndarmálum með tilvísun í persónuverndaryfirlýsingu þeirra; og

  • Innri og ytri endurskoðendur: þar sem þarf að framkvæma fyrirtækisúttektir eða rannsóknir á kvörtunum eða öryggisógn.

7. Hvernig eru persónuupplýsingar þínar unnar og þær notaðar fyrir tryggingar og þjónustu?

Sjá eftirfarandi hlekk til að fá almennt yfirlit yfir og skilja betur hvernig og hvers vegna Booking.com safnar og notar persónuupplýsingar þínar og lagalegan grundvöll okkar fyrir því.

Þegar BDIS býður þér tryggingar getur það þurft að nota og miðla persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að vátryggja og selja trygginguna. Þessi upplýsingaskrá á við um þig sem væntanlegan eða raunverulegan tryggingataka og við rétthafa samkvæmt skilmálum, fjölskyldumeðlimi, kröfuhafa og aðra aðila sem eru aðilar að kröfu.

Til að koma á tryggingu, veita tilboð, ákvarða tryggingaupphæð og sjá um tryggingakröfur (eins og við á), deilum við persónuupplýsingum þínum, sem við fáum við bókun, með BDIS, hugsanlega öðrum á vegum Booking, kröfuhafa þriðja aðila og vátryggjanda sem veitir trygginguna. Þar með kunna að fylgja nöfn, fæðingardagur og aldur allra tryggðra ferðalanga sem og tengiliðsupplýsingar (netfang, póstfang, símanúmer), vegabréfsupplýsingar, greiðsluupplýsingar og ferðatilhögun. Einnig má fara fram á upplýsingar til viðbótar til að veita tryggingavernd og þjónustu og til að gefa út tryggingaskírteini og/eða sjá um tryggingakröfu, að meðtöldum nöfnum á fjölskyldumeðlimum, upplýsingum um heilsufar og sjúkraskrár og/eða aðra rétthafa sem og aðrar upplýsingar sem þarf til að framkvæma eða styðja rannsókn við tryggingakröfu („Sérgögn um tryggingar“).

Ef þú leggur fram kröfu samkvæmt tryggingaskírteini er hugsanlegt að BDIS, tryggingataki eða kröfuhafi þriðja aðila sjái beint um hana. Það þýðir að þú verðir beðin/n að veita persónuupplýsingar og senda kröfuna beint til fulltrúa tryggingafyrirtækisins. Vátryggjandinn upplýsir þig þar um þegar tekið er við upplýsingunum frá þér. Þegar vátryggjandi sér um kröfu þína má vera að BDIS og/eða BDBV fái upplýsingar um stöðu kröfu þinnar til að þú getir fengið viðskiptaþjónustu.

Við notum upplýsingarnar sem við söfnum um þig í tengslum við tryggingar og þjónustu til að:

  • Bjóða, stýra og sjá um tryggingar og þjónustu við þig, þ.m.t. upphafstilboð og endurnýjunartilboð og upplýsingar um velferð viðskiptavinar;

  • Framkvæma áreiðanleikakönnun, kanna auðkenni, lánshæfi, gjaldþrot, refsingar, upplýsingagjöf, peningaþvætti, „áreiðanleika“ og gera aðrar viðskiptaprófanir, prófanir og kannanir áhættustýringarstofa;

  • Láta sérhæfnireglur vátryggjandans meta áhættu varðandi framtíðar- eða fyrirliggjandi tryggingaskilmála;

  • Vinna úr greiðslum, þ.m.t. þínum greiðslum fyrir tryggingariðgjöld og hvers kyns leiðréttingum;

  • Styðja eða aðstoða tryggingataka við að stýra, rannsaka og útkljá kröfur eða kvartanir í tengslum við tryggingaskilmála og/eða veitta þjónustu;

  • Gera mögulegt að hindra glæpi, greina og rannsaka þá og handtaka eða lögsækja lögbrjóta;

  • Framfylgja samningum okkar, rekja skuldara og endurheimta útistandandi skuldir í tengslum við tryggingar og veitta þjónustu;

  • Uppfylla lagakröfur og reglugerðir, leysa úr ágreiningi og fylgjast með eftirfylgni þeirra;

  • Vera í samskiptum við þig og svara beiðnum, fyrirspurnum, athugasemdum og áhyggjum;

  • Styðja og/eða aðstoða vátryggjendur við að framkvæma greiningar fyrir áhættulíkön og strauma;

  • Framkvæma markaðskönnun og taka til umfjöllunar álit þitt hvað varðar tryggingar og þjónustu til að þróa og bæta tryggingar okkar og þjónustu almennt;

  • Kannanir, úttekt, skýrsla og fyrir annan rekstrartilgang, m.a. að ákvarða skilvirkni í kynningartilboðum og meta rekstrarniðurstöður; og

  • Framkvæma setningu viðmiða, líkanagerð, markaðsrannsóknir og gagnagreiningu í tengslum við þróun á nýjum og fyrirliggjandi ferlum, tryggingum og þjónustu.

  • Nákvæmni, gegnsæi og réttur þinn

8. Nákvæmni, gegnsæi og réttur þinn

Við treystum á að þú gætir þess að ekkert vanti í persónuupplýsingar þínar, þær séu réttar og ekki úreltar. Þú ættir því að láta okkur vita af öllum breytingum á persónuupplýsingum þínum, einkum breytingum varðandi tengiliðsupplýsingar þínar, bankaupplýsingar, tryggingarskilmála eða allar aðrar upplýsingar sem geta haft áhrif á rétta meðferð á og umsjón með tryggingaskilmálum þínum og/eða veitta þjónustu, þ.m.t. hugsanlega kröfumeðferð og greiðslur.

Vinsamlegast gerðu okkur viðvart ef persónuupplýsingar þínar breytast eða þær eru rangar á einhvern hátt, eins fljótt og hægt er. Nánari upplýsingar um hvernig þú getur stjórnað persónuupplýsingum þínum er að finna í aðalpersónuverndaryfirlýsingunni.

9. Upplýsingar sem þú gefur upp um annað fólk

Hvernig söfnum við þá þessum upplýsingum hjá þér? Kannaðu eftirfarandi hlekk til að fá nánari upplýsingar um hvernig við söfnum persónuupplýsingum beint og óbeint og nánar um persónuupplýsingar sem við söfnum.

Þegar þú veitir okkur persónuupplýsingar um aðra einstaklinga (t.d. upplýsingar um maka, sambýling, barn(börn), venslalið eða nánustu aðila), er mælt með, eftir því sem við á, að þú látir viðkomandi einstaklinga fá afrit af þessari persónuverndaryfirlýsingu fyrirfram til að tryggja að þeim sé ljóst að við munum nota upplýsingar um þau. Á þessari stundu þykir okkur hins vegar rétt að benda á að það er á þína ábyrgð að sá einstaklingur eða einstaklingar sem þú hefur deilt upplýsingum um séu meðvitaðir um það og hafi samþykkt hvernig Booking.com notar upplýsingar þeirra (eins og útskýrt er í þessari persónuverndaryfirlýsingu).

10. Áhrif ef ekki eru gefnar upplýsingar

Þér ber að veita allar sanngjarnar persónuupplýsingar sem við krefjumst (á eyðublaði sem við samþykkjum) til að mæta skuldbindingum okkar í sambandi við tryggingar og veitta þjónustu til þín, auk allra laga- og reglugerðaskyldna. Þegar þú lætur hjá líða að skila eða skilar seint upplýsingum er eðlilegt að við krefjumst þess af þér að þú uppfyllir þær skyldur. Ef veittar upplýsingar eru annað hvort ófullnægjandi og/eða ónákvæmar getur verið að við getum ekki boðið þér tryggingar og þjónustu og/eða að við kunnum að binda tafarlaust endi á veitta þjónustu. Það er vegna þess að við getum þurft að fylgja gildandi alríkis- og ríkjalögum, reglum og reglugerðum allra fylkja.

Við notum persónuupplýsingar þínar í þeim tilgangi að veita þér tryggingu og sjá um hvers kyns kvartanir og kröfur í tengslum við slíka tryggingu (ef við á) sem getur kallað á að við deilum persónuupplýsingum þínum með öðrum þriðju aðilum. Þar með teljast dótturfyrirtæki, hlutdeildarfélög og/eða systurfyrirtæki Booking.com-fjölskyldunnar og hlutdeildarfélög samstæðunnar Booking Holdings Inc. Skoðaðu hvernig við miðlum persónuupplýsingum þínum innan fyrirtækjasamstæðunnar Booking Holdings Inc.. Einnig er hugsanlegt að við deilum persónuupplýsingum þínum með eftirlitsaðilum, stjórnvöldum og/eða rannsóknaryfirvöldum ef lög krefjast þess eða ef það er bráðnauðsynlegt til að hindra, greina eða lögsækja fyrir glæpi. Hér má lesa meira um það hvernig gögnum er deilt með þriðja aðila.

Við áttum okkur á mikilvægi þess að vernda einkalíf barna í þessum afar gagnvirka heimi.

Þjónusta okkar er ekki ætluð fyrir börn undir 18 ára aldri og við munum aldrei safna upplýsingum um þau nema þær séu veittar af (og með samþykki) foreldri eða forráðamanni. Þær fáu aðstæður þar sem við þyrftum að safna persónuupplýsingum um börn undir 18 ára aldri eru m.a. sem hluti af bókun, kaup á annarri ferðatengdri þjónustu (m.a. tryggingum) eða aðrar undantekningaraðstæður (svo sem eiginleikar sem beint er til fjölskyldna). Aftur verða þessar upplýsingar eingöngu notaðar og þeim safnað eins og þær eru gefnar upp af foreldri eða forráðamanni og með samþykki þeirra. Hvað varðar tryggingar er ekki hægt að kaupa tryggingu nema vera orðinn 18 ára. Við vinnum aðeins úr upplýsingum um börn með leyfi foreldra eða forráðamanna og/eða þegar foreldri(-ar) eða forráðamaður(-menn) veita upplýsingarnar. Ef við verðum þess vör að við höfum unnið úr upplýsingum um barn undir 18 ára aldri án samþykkis foreldris eða forráðamanns eyðum við þeim.

Ef þú ert barn undir 18 ára aldri máttu ekki nota þjónustu okkar og ættir ekki að senda neinar upplýsingar um þig til okkar í gegnum tilboð okkar um tryggingu og/eða þjónustu. Hér geturðu lesið meira um hvernig Booking.com fer með persónuupplýsingar barna.

Ef þú ert foreldri eða forráðamaður og þú telur að barn þitt undir 18 ára aldri hafi veitt okkur upplýsingar án þíns samþykkis skaltu hafa samband við okkur á dataprotectionoffice@booking.com og við munum grípa til eðlilegra ráðstafana til að tryggja að slíkum upplýsingum verði eytt úr okkar skrám.

11. Flutningur gagna á milli landa

Booking.com er alþjóðlegt fyrirtæki. Upplýsingar sem við söfnum um þig, eins og fram kemur í persónuverndaryfirlýsingunni, kunna að verða aðgengilegar, fluttar til eða geymdar í löndum þar sem ekki gilda sömu persónuverndarlög og í landinu sem þú gafst upplýsingarnar upphaflega í. Í slíkum tilfellum verndum við gögn þín eins og fram kemur í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Við sumar aðstæður þurfum við að flytja persónuupplýsingar þínar úr landi þar sem þeim var safnað í þeim tilgangi að framkvæma tryggingu og þjónustu sem við veitum þér. Þegar þörf er fyrir slíkan flutning grípum við til eðlilegra öryggisráðstafana til að vernda persónuupplýsingar þínar og tryggja að þessir flutningar fari fram samkvæmt gildandi persónuverndarlögum. Einkum þegar gögnin þín eru flutt til utanaðkomandi þjónustuaðila setjum við upp viðeigandi samnings-, tæknileg og skipulagsleg úrræði hjá þeim.

Vakni spurningar varðandi tiltekið gangverk við flutning persónuupplýsinga þinna til annars lands skaltu, ef við á, hafa samband á dataprotectionoffice@booking.com eða með því að hafa samband við skrifstofu okkar með tengiliðsupplýsingunum sem er að finna í kaflanum „Spurningar eða vandamál“ hér fyrir neðan.

12. Fyrir íbúa Kaliforníu – lög Kaliforníu

Ef þú vilt láta nýta rétt þinn samkvæmt Neytendalögum Kaliforníu frá 2018 ásamt áorðnum breytingum samkvæmt Persónuverndarlögum Kaliforníu frá 2020 („CCPA“) skaltu hafa samband við okkur á dataprotectionoffice@booking.com með efnislínunni: „California Resident Privacy Rights - Request“.

Hér er TILKYNNING VIÐ SÖFNUN frá CCPA hjá Booking.com.

Þessi kafli úr tilkynningu okkar veitir íbúum Kaliforníu viðbótarupplýsingar samkvæmt CCPA og á við „persónuupplýsingar“ eins og þær eru skilgreindar í CCPA, hvort sem þeim er safnað á netinu eða öðruvísi. Þessi kafli í persónuverndaryfirlýsingu okkar á við um www.booking.com og aðrar vefsíður eða farsímaöpp sem tengjast þessari yfirlýsingu sem og starfsemi án nettengingar þar sem íbúum Kaliforníu er beint að þessum kafla yfirlýsingarinnar. Þetta á ekki við um vefsíður annarra en Booking.com eða farsímaöpp sem þú hefur aðgang að í gegnum tryggingar og þjónustu. Þessi þjónusta heyrir undir persónuverndarskilmála sem birtast á þessum síðum og forrit. „Persónuupplýsingar“ í þessum sérkafla tilkynningar okkar þýðir hvers kyns upplýsingar sem auðkenna, tengjast, lýsa, mega teljast tengjast eða gætu hugsanlega tengst, beint eða óbeint, tilteknum íbúa eða heimili í Kaliforníu.

Þjónustaðili

Sumar rekstrareiningar Booking.com og samstæða hennar koma fram sem þjónustaðilar samkvæmt CCPA. Það þýðir að þeir safna og nota persónuupplýsingar fyrir hönd annars fyrirtækis (t.d. þar sem BDIS veitir vátryggjanda og öðrum þriðja aðila tryggingar og þjónustu). Þegar persónuupplýsingar þínar eru unnar hjá BDIS eða öðru fyrirtæki Booking.com sem kemur fram sem þjónustuaðili mun persónuverndarstefna þessa annars fyrirtækis skýra persónuverndarverklag þess. Athugið að í sumum tilfellum geta BDIS og önnur fyrirtæki eða einingar Booking.com komið fram sem þjónustuaðili fyrir aðra aðila að Booking.com, og í þeim tilfellum á þessi kafli persónuverndaryfirlýsingarinnar við. Ef þú biður um að nýta rétt þinn samkvæmt CCPA gagnvart Booking.com þar sem það er þjónustuaðili samkvæmt CCPA getum við þurft að upplýsa viðkomandi fyrirtæki um tilmæli þín.

Persónuupplýsingar sem þessi Kaliforníukafli í Persónuverndaryfirlýsingunni tekur ekki til

Það er fjöldi undantekninga á beitingu CCPA. Eftirfarandi lýsir sumum flokkum persónuupplýsinga sem ekki heyra undir CCPA og eru því ekki tilteknir í þessum Kaliforníukafla tilkynningarinnar. Takið eftir að aðrir kaflar tilkynningarinnar geta enn átt við auk annarra persónuverndartilkynninga sem geta tekið á sérstöku sambandi okkar við þig, þ.m.t. persónuverndaryfirlýsingum sem sendar eru einstaklingum.

  • Heilsufars- og sjúkraskrár sem við söfnum og heyra undir lög um meðferð heilsufarsupplýsinga frá 1996 („HIPAA“), lög Kaliforníu um trúnað varðandi heilsufarsupplýsingar eða lög um heilsufarsupplýsingatækni til hagsbóta og fyrir klínískt heilbrigði (California Confidentiality of Medical Information Act or the Health Information Technology for Economic and Clinical Health Act). Fyrir þessa gerð upplýsinga fá einstaklingar sérstaka persónuverndaryfirlýsingu samkvæmt HIPAA eins og gildandi lög, reglur og reglugerðir kveða á um.

  • Upplýsingar sem við söfnum í tengslum við útgáfu fjármálaafurða til þín sem nota skal fyrst og fremst fyrir þig persónulega, fjölskylduna eða heimilið og það fellur undir lög Gramm-Leach-Bliley („GLBA“) eða lög um vernd persónulegra fjármálaupplýsinga í Kaliforníu. Til dæmis þegar við förum með kröfur fyrir þig sem einstakling. Athugið að þessi útilokun á ef til vill ekki við allar persónuupplýsingar þínar, auk persónuupplýsinga sem safnað var áður en þú gerðist viðskiptavinur. Booking.com kemur sérstakri persónuverndaryfirlýsingu GLBA til tiltekinna neytenda samkvæmt gildandi lögum, reglum og reglugerðum.

  • Upplýsingar sem við söfnum og veitum til notkunar falla undir lög um lánshæfi einstaklinga.

  • Upplýsingar sem við söfnum á borð við bifreiðaskráningu og falla undir lög um persónuvernd ökumanna frá 1994.

  • Almennar upplýsingar úr skrám stjórnvalda og upplýsingar sem telja má að séu birtar almenningi með löglegum hætti af þér eða fjölmiðlum með mikla útbreiðslu eða af persónu sem þú hefur miðlað upplýsingunum til og takmarkast ekki við tiltekinn hóp.

  • Óauðkenndar eða samanteknar upplýsingar.

Kaliforníutilkynning við söfnun

Flokkar persónuupplýsinga sem safnað er og afhjúpaðar

Eftirfarandi auðkennir þá flokka persónuupplýsinga sem við kunnum að safna um þig. Athugaðu að söfnun, notkun og afhending persónuupplýsinga um þig breytast eftir aðstæðum og eðli samskipta eða sambands við þig.

Eftir því hvernig þú notar tryggingar okkar og þjónustu kunnum við, vátryggjandinn eða kröfuhafi fyrirtækis þriðja aðila að safna (eða þú kannt að veita) eftirfarandi flokka persónuupplýsinga.

  • Auðkenni, svo sem raunverulegt nafn, dulnefni, starfstitill, heimilisfang, netfang, fæðingardagur, númer tryggingaskírteinis, kennitala, númer ökuskírteinis, önnur auðkenni stjórnvalda, kreditkortanúmer og skattaauðkenni.

  • Netauðkenni, svo sem einkvæm persónuauðkenni, tækjaauðkenni, auglýsingaauðkenni, IP-tala og fótsporaupplýsingar.

  • Skrár yfir viðskiptavin eða kröfuhafa, svo sem skrár um viðskiptavin eða kröfuhafa á pappír eða rafrænu sniði, sem innihalda persónuupplýsingar sem og upplýsingar frá tryggingasala/-fulltrúa eða endurtryggjanda vegna undirritunar og upplýsinga sem fylgja kröfuskrá, svo sem nafn, undirskrift, líkamseinkenni eða lýsing, heimilisfang, símanúmer, menntun, fyrirliggjandi starf, starfsferill, kennitala, númer vegabréfs, ökuskírteini eða skilríkjanúmer, númer á tryggingaskírteini, númer bankareiknings, númer greiðslukorts, kyn, hæð, þyngd, heilsufarsupplýsingar (auk skýrslna og kvittana fyrir læknisþjónustu), upplýsingar um heilsufarstryggingu, upplýsingar um heimilisfang, öryggis- ferðaáætlunartilhögun, skrá yfir persónulegar eignir, keypt eða fengin trygging eða þjónusta.

  • Fjármálaupplýsingar, svo sem númer bankareiknings eða kreditkortanúmer og aðrar greiðsluupplýsingar.

  • Einkenni verndaðra flokka samkvæmt lögum Kaliforníu, svo sem aldur (40 ára eða eldri), kynþáttur, þjóðaruppruni, þjóðerni, ríkisborgararéttur, trúarbrögð eða trú, hjúskaparstaða, þungun, sjúkdómsástand, líkamleg eða andleg fötlun, kyn, kynhneigð og herþjónustureynsla eða -staða.

  • Notkunarupplýsingar, svo sem noktun á interneti eða öðru rafrænu neti, varðandi notkun íbúa Kaliforníu á vefgáttum, vefsíðum, öppum eða auglýsingum, þ.m.t. en takmarkast ekki við vafrasögu, smellugögn, leitarsögu og innihald opinna innleggja.

  • Lífkennaupplýsingar, svo sem líffræðileg eða hegðunareinkenni einstaklings auk mælinga á líkamlegum eiginleikum, svo sem hæð, þyngd og blóðþrýstingi, svefn, heilsa eða hreyfingargögn sem innihalda auðkennandi upplýsingar.

  • Menntunarupplýsingar, svo sem námsskrár sem tengjast beint nemanda sem menntastofnun viðheldur eða aðili sem kemur fram af hálfu hennar, svo sem einkunnir, eftirrit, bekkjarskrár, námsskrár, auðkenniskóðar nemenda og skrá yfir agamál.

  • Staðsetningarupplýsingar, svo sem staðsetning eða hreyfingar.

  • Hljóðgögn, myndbandsgögn og aðrar rafrænar upplýsingar, svo sem hljóðupplýsingar með upptökum af símtölum, myndbönd og ljósmyndir, fundarupptökur og vefnámskeið og CCTV-upptökur til að tryggja skrifstofur okkar og húsnæði.

  • Faglegar eða ráðningartengdar upplýsingar, svo sem starfsferill, hæfni, leyfiskaup og skrár yfir agamál.

  • Ályktanir og óskir, svo sem ályktanir dregnar af einhverjum upplýsingum sem lýst er í þessum kafla um neytanda ásamt ályktunum sem endurspegla óskir neytanda, eiginleika, hegðun og færni.

  • Viðkvæmar persónuupplýsingar, svo sem kennitala, númer á ökuskírteini, kynþátta- eða þjóðaruppruni, trúarbrögð eða lífsskoðanir, sjúkdómsástand og líkamleg eða andleg fötlun.

Heimildir persónuupplýsinga

Venjulega söfnum við persónuupplýsingum úr eftirfarandi flokkum heimilda:

  • Beint frá þér og sjálfkrafa;

  • Hlutdeildarfélög okkar, systurfyrirtæki og dótturfyrirtæki;

  • Miðlarar og fulltrúar;

  • Tryggingatakar samstæðu; og

  • Sölu- og þjónustuaðilar (t.d. stjórnendur þriðja aðila).

Tilgangur með söfnun og miðlun persónuupplýsinga

Eins og lýst er í kaflanum hér fyrir ofan sem ber titilinn „Hvernig eru persónuupplýsingar þínar unnar og notaðar í tryggingum og þjónustu?“ söfnum við og vinnum almennt talað persónuupplýsingar sem við söfnum vegna eftirfarandi rekstrar og viðskipta:

  • Stunda viðskipti okkar;

  • Veita tryggingar og þjónustu;

  • Eiga samskipti við þig;

  • Meta og bæta tryggingar okkar og þjónustu;

  • Greiningarlíkön til að styðja við rekstur okkar;

  • Markaðssetning og auglýsingar;

  • Ályktanir;

  • Finna staðsetningar samkvæmt beiðni;

  • Vegna svika og í öryggistilgangi;

  • Lagalegar kröfur;

  • Viðskiptafærslur; og

  • Annar rekstrarlegur eða viðskiptalegur tilgangur.

Til að fá nánari upplýsingar, meðal annars um móttakendur persónuupplýsinga þinna, geturðu lesið hlutana „Hvernig persónuupplýsingum safnar Booking.com?“ og „Hvernig deilir Booking.com gögnum frá þér með þriðju aðilum?“ í persónverndaryfirlýsingu Booking.com.

Viðkvæmar persónuupplýsingar

Fyrir utan tilganginn sem lýst er hér fyrir framan söfnum við ekki, notum ekki eða deilum ekki „viðkvæmum persónuupplýsingum“ umfram tilganginn sem heimill er samkvæmt CCPA.

Þar af leiðandi notum við og deilum viðkvæmum persónuupplýsingum eins og nauðsynlegt þykir og eðlilegt: (i) til að veita þér umbeðna þjónustu; (ii) til að hjálpa við að tryggja öryggi og heilindi, auk þess að hindra, finna og rannsaka öryggistilvik; (iii) til að uppgötva, hindra og bregðast við meinfýsinni, sviksamlegri, blekkjandi eða ólöglegri hegðun; (iv) til að sannreyna eða viðhalda gæðum og öryggi í þjónustu okkar; (v) til að uppfylla lagalegar skyldur okkar; (vi) gagnvart þjónustuaðilum okkar sem veita þjónustu af okkar hálfu; og (vii) í öðrum tilgangi en að draga ályktanir um persónueinkenni þín.

Varðveisla persónuupplýsinga

Við varðveitum persónuupplýsingar sem við söfnum eins og nauðsynlegt þykir í þeim tilgangi sem lýst er í þessari tilkynningu eða sem þér var öðruvísi birt við söfnun þeirra. Til dæmis höldum við eftir tilteknum auðkennum eins lengi og þurfa þykir til að uppfylla skyldur okkar vegna skatta, reikninga og skráninga, til að sjá um vissar tryggingar og umfang og vegna rannsókna, þróunar og öryggissjónarmiða sem og viðbótartímabils eins og nauðsynlegt er til að vernda, verja og halda fram rétti okkar, verja okkur fyrir hugsanlegum kröfum og til að uppfylla lagalegar skyldur. Öðru hverju má vera að við afkennum persónuupplýsingar þínar, varðveitum þær og notum í viðskiptalegum tilgangi samkvæmt CCPA.

Þegar persónuupplýsingum er deilt með þriðja aðila eða öðrum viðtakendum

Meðal flokka af persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa deilt í viðskiptalegum tilgangi undanfarna tólf (12) mánuði eru:

  • Auðkenni (t.d. nafn þitt, svæðisnúmer, netfang, IP-tala, einkvæmt auðkenni)

  • Upplýsingar sem varða fjárhag, heilsufar eða sjúkratryggingar (t.d. bankareikningsnúmer þitt, greiðslukortanúmer eða heilsuupplýsingar – veittar af þér eða fyrir þína hönd)

  • Upplýsingar sem mega ekki vera grundvöllur mismununar samkvæmt lögum Kaliforníu eða alríkislögum (t.d. um kyn þitt, trúfélag eða kynhneigð)

  • Viðskiptatengdar upplýsingar (t.d. upplýsingar um kaup eða kaupferill)

  • Upplýsingar um virkni þína á netinu eða öðrum rafrænum netum (t.d. upplýsingar um notkun þína á vefsíðum eða öppum)

  • Staðsetningarupplýsingar (t.d. efnisleg staðsetning þín)

  • Sjónrænar upplýsingar (t.d. allar myndir sem þú setur inn á svæðið þitt)

  • Afleiddar upplýsingar (t.d. tölfræðigreining og val þitt)

  • Faglegar eða vinnutengdar upplýsingar (t.d. upplýsingar um vinnuveitanda og viðskiptaferðir)

  • Viðkvæmar upplýsingar (t.d. ökuskírteini, ríkisbundið kenninúmer eða vegabréfsnúmer, innskráningarupplýsingar svæðis, samskipti á milli þín og ferðaþjónustu gegnum Booking.com)

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um ofangreinda flokka, tilteknar tegundir persónuupplýsinga sem við söfnum eða í hvaða tilgangi við söfnum þeim skaltu lesa hlutana „Hvernig persónuupplýsingum safnar Booking.com?“ og „Af hverju safnar Booking.com og notar persónuupplýsingar þínar?“ í persónuverndaryfirlýsingu Booking.com.

Meðal flokka þriðju aðila og annarra viðtakenda sem við kunnum að deila með persónuupplýsingum í viðskiptalegum tilgangi eru:

  • Hlutdeildarfélög, systurfyrirtæki, dótturfyrirtæki og viðskiptafélagar;

  • Sölu- og þjónustuaðilar;

  • Færsluhirðar rekstrareigna;

  • Ráðgjafar, endurskoðendur, ráðunautar og fulltrúar;

  • Fulltrúar og miðlarar;

  • Vátryggjendur;

  • Endurtryggjendur;

  • Eftirlitsaðilar, stjórnvaldseiningar og löggæsla;

  • Stýrikerfi og vettvangar; og

  • Aðrir sem lög gera kröfu um.

CCPA skilgreinir „sölu“ sem að birta þriðja aðila eða gera aðgengilegar persónuupplýsingar í skiptum fyrir fjárhagslegan eða annan verðmætan ávinning og „deila“ felur í sér að birta eða að gera þriðja aðila aðgengilegar persónuupplýsingar fyrir auglýsingar byggt á hegðunarmynstri. Hugsanlega deilum við ákveðnum persónuupplýsingum þínum með þriðju aðilum, sem gæti samkvæmt lögum í Kaliforníu talist vera „sala“ á upplýsingum. Þetta gætu til dæmis verið upplýsingar sem tengjast auðkennandi atriðum, viðskiptaupplýsingum, staðsetningarupplýsingum, netnotkun og afleiddum upplýsingum, eins og lýst var hér fyrir ofan.

Við „deilum“ hugsanlega eftirfarandi flokkum persónuupplýsinga: netauðkenni og notkunarupplýsingar. Við birtum auglýsinganeti þriðja aðila, greiningaraðilum og samfélagsmiðlum þessar upplýsingar vegna markaðssetningar og auglýsinga.

Réttindi varðandi persónuupplýsingar þínar

CCPA veitir íbúum Kaliforníu sérstök réttindi varðandi persónuupplýsingar. Þessi hluti lýsir rétti þínum samkvæmt CCPA og skýrir hvernig sækja skal slíkan rétt. Með vissum undantekningum eiga neytendur í Kaliforníu rétt á að bera fram eftirfarandi beiðni:

Réttur til að vita. Hvað varðar persónuupplýsingar sem við höfum safnað um þig áttu rétt á að fá eftirfarandi frá okkur:

  • Flokkar persónuupplýsinga sem við söfnuðum um þig;

  • Heimildir sem við höfum sótt þær persónuupplýsingar í;

  • Rekstrarlegur eða viðskiptalegur tilgangur með að safna, selja eða deila þeim

  • persónuupplýsingum;

  • Flokkar þriðju aðila sem við höfum birt þær persónuupplýsingar; og

  • Afrit af tilteknum brotum úr persónuupplýsingum þínum sem við söfnuðum.

Réttur til að eyða. Að uppfylltum vissum skilyrðum og undantekningum áttu rétt á að láta eyða persónuupplýsingum sem við höfum safnað um þig. Til að nýta þér rétt þinn til að biðja um aðgang að eða eyðingu á persónuupplýsingum þínum samkvæmt lögum í Kaliforníu skaltu opna þetta vefeyðublað.

Réttu til leiðréttinga. Með vissum takmörkunum áttu rétt á að láta leiðrétta villur í persónuupplýsingum þínum.

Réttur til að hafna. Þú átt rétt á að hafna „sölu“ og „deilingu“ persónuupplýsinga þinna eins og þau hugtök eru skilgreind undir CCPA. Þú getur nýtt þér rétt þinn til að hafna „sölu“ eða „deilingu“ persónuupplýsinga þinna með því að smella á þennan tengil og fylgja leiðbeiningunum. Einnig geturðu notað hlekkinn „Ekki selja eða deila persónuupplýsingum mínum“ neðst á síðu okkar.

Réttur til jafnréttis. Þú átt rétt á láta ekki neita þér um vörur eða þjónustu fyrir að nýta þér rétt þinn eins og lýst er í þessum hluta.

Nýting réttar þíns

Ef þú býrð í Kaliforníu og vilt nýta rétt þinn samkvæmt CCPA geturðu gert það á eftirfarandi hátt:

Fengið aðgang að eyðublaði okkar um Beiðni skráðs aðila fyrir neytendur Booking.com;Eða

Haft samband við okkur með að senda tölvupóst á: dataprotectionoffice@booking.com með efnislínunni: „California Resident Privacy Rights - Request“.

Til að nýta þér rétt þinn til að biðja um aðgang að eða eyðingu á persónuupplýsingum þínum samkvæmt lögum í Kaliforníu skaltu opna þetta vefeyðublað: Beiðni skráðs aðila fyrir neytendur Booking.com.

Viðurkenndur umboðsmaður. Þú getur útnefnt einhvern sem viðurkenndan umboðsmann til að senda beiðnir og koma fram fyrir þína hönd. Viðurkenndir umboðsmenn þurfa að sanna heimild sína við fyrstu samskipti við okkur og við getum líka krafist þess að þú sannreynir beint hver þú ert og heimild þína sem viðurkenndur umboðsmaður.

Rekstraraðilar sem starfa sem viðurkenndur umboðsmaður fyrir hönd íbúa Kaliforníu þurfa að leggja fram hvort tveggja af eftirfarandi:

(1) Vottorð um að fyrirtækið hafi staðið í skilum innan síns fylkis; og

(2) Skrifleg heimild undirrituð af Kaliforníubúanum, þar sem fram kemur nafn Kaliforníubúans, heimilisfang, símanúmer og gilt netfang sem veitir með skýrum hætti fyrirtækinu heimild til að koma fram fyrir hönd Kaliforníubúans.

Einstaklingar sem koma fram sem viðurkenndur umboðsmaður fyrir hönd Kaliforníubúa, verða að skila skriflegri heimild undirritaðri af Kaliforníubúanum þar sem fram kemur nafn Kaliforníubúans, heimilisfang, símanúmer og gilt netfang sem veitir með skýrum hætti einstaklingnum heimild til að koma fram fyrir hönd Kaliforníubúans.

Við áskiljum okkur rétt til að hafna (1) viðurkenndum umboðsmönnum sem ekki uppfylla ofannefndar kröfur eða (2) sjálfvirkum CCPA-beiðnum þar sem við höfum ástæðu til að ætla að öryggi persónuupplýsinga beiðanda sé ekki tryggt.

Sannreyning. Áður en við bregðumst við beiðni þinni verðum við að sannreyna hver þú ert með því að nota persónuupplýsingar sem þú veittir okkur nýlega. Upplýsingarnar sem við þurfum til að sannreyna hver þú ert eru mismunandi eftir beiðninni og tengslum okkar við þig og gætu falið í sér (eins og við á) nafn þitt, netfangið sem þú notar reglulega í samskiptum við okkur, símanúmer þitt, fæðingardag og ef við á númer á tryggingaskírteini. Við gerum gangskör að því að sannreyna með samanburði upplýsingar frá þér við upplýsingar í okkar skrám með því t.d. að biðja um upplýsingar um fyrri bókanir hjá okkur. Í sumum tilfellum förum við hugsanlega fram á upplýsingar til að sannreyna hver þú ert eða þar sem þess þarf til að vinna beiðni þína. Í sumum tilfellum gerum við hugsanlega könnun, m.a. með tilstilli þriðja aðila við að sannreyna auðkenni, til að sannreyna auðkenni þitt áður en farið er í persónuupplýsingar þínar. Ef við getum ekki sannreynt auðkenni þitt eftir tilraun til þess í góðri trú má vera að við höfnum beiðninni og, fari svo útskýrum við ástæður höfnunar.

Ef þú ert viðurkenndur fulltrúi og þú vilt nýta þér réttindi fyrir hönd neytanda í Kaliforníu skaltu hafa samband við okkur á dataprotectionoffice@booking.com með efnislínunni: „Persónuverndarréttindi Kaliforníubúa - Beiðni“ og hengja við afrit af skriflegri heimild neytandans um að útnefna þig sem fulltrúa sinn. Við gætum þurft að fá staðfestingu á auðkenni þínu áður en unnið er úr réttarbeiðni þinni.

Hafðu samband við okkur

Ef spurningar vakna eða þú hefur athugasemdir um þennan hluta tilkynningarinnar, um hvernig við söfnum og notum persónuupplýsingar þínar, valkosti þína og rétt varðandi slíka notkun og ósk um að neyta réttar þíns samkvæmt lögum Kaliforníu, skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur á:

Með pósti: Booking.com, 597 Oosterdokskade 163, 1011 DL, Amsterdam, Hollandi.

Með tölvupósti: dataprotectionoffice@booking.com

Ef þú vilt neyta þessa eða einhvers annars réttar þíns samkvæmt lögum í Kaliforníu eða hafa samband við okkur ef þú hefur einhverjar áhyggjur eða spurningar varðandi þessar persónuverndaryfirlýsingu og verkferli okkar getur þú gert það með því að senda okkur tölvupóst á netfangið dataprotectionoffice@booking.com. Í efnislínu póstsins skal standa: „California Resident Privacy Rights - Request“.

Fyrir íbúa utan Kaliforníu

Ef þú býrð í Bandaríkjunum annars staðar en í Kaliforníu eiga upplýsingarnar í þessum hluta við um þig auk annars efnis í þessari persónuverndaryfirlýsingu. Í þessum hluta eru upplýsingar um tiltekin réttindi sem þú nýtur sem kunna að vera frábrugðin þeim sem lýst er annars staðar í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Réttindi þín samkvæmt persónuverndarlögum eru meðal annars réttur til að fá aðgang að persónuupplýsingunum þínum, réttur til að leiðrétta persónuupplýsingarnar þínar, réttur til að biðja um að persónuupplýsingunum þínum verði eytt og réttur til að fá afrit af persónuupplýsingunum þínum. Persónuverndarlög í Bandaríkjunum veita þér tiltekin viðbótarréttindi sem fela í sér rétt til að hafna: sölu persónuupplýsinga þinna, miðuðum auglýsingar og gerð persónusniðs, sem kann að hafa lagaleg áhrif á þig.

Fylltu út þetta Eyðublað með beiðni skráðs aðila fyrir neytendur Booking.com til að nýta þér rétt þinn til að biðja um aðgang að, fá afrit af og leiðrétta eða eyða persónuupplýsingum þínum. Til að afþakka sölu á persónuupplýsingum þínum, miðuðum auglýsingum eða gerð persónusniðs skaltu nota kjörstillingaflipann í sömu Beiðni skráðs aðila fyrir neytendur Booking.com.

Hafðu samband ef þú vilt spyrja okkur um þessa persónuverndaryfirlýsingu og starfshætti okkar eða nýta einhver af réttindum þínum með því að senda tölvupóst á netfangið dataprotectionoffice@booking.com með efnislínunni: „US Resident Privacy Rights - Request“.

Ef þú ert foreldri, forráðamaður eða viðurkenndur fulltrúi neytanda og þú vilt nýta þér réttindi fyrir hönd neytanda skaltu hafa samband við okkur á dataprotectionoffice@booking.com. Við gætum þurft að staðfesta hver þú ert áður en við afgreiðum réttindabeiðnina.

Þegar þú nýtir réttindi þín staðfestum við hver þú ert með því að athuga hvort nafnið og netfangið sem þú gafst upp í beiðninni samræmist upplýsingunum sem þú gafst upp þegar þú notaðir þjónustu okkar, auk annarra staðfestingarupplýsinga. Þú getur heimilað öðrum einstaklingi að nýta rétt til að hafna notkun persónuupplýsinga þinna fyrir þína hönd. Ef okkur berst slík beiðni sendum við þér tölvupóst til staðfestingar á því að beiðandinn hafi umboð þitt.

13. Varðveisla

Við fylgjum eðlilegum ferlum við að hindra óheimilan aðgang að og misnotkun persónuupplýsinga í samræmi við gildandi lög, reglur og reglugerðir alríkis og fylkis. Rekstrarkerfi okkar og aðferðir tryggja að við gerum allar eðlilegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar þínar samkvæmt öllum gildandi lögum, reglum og reglugerðum í alríkinu og fylkinu. Við notum einnig sérstakt öryggisverklag ásamt tæknilegum og áþreifanlegum takmörkunum við aðgang að og notkun persónuupplýsinga á vefþjónum okkar. Einungis viðurkenndu starfsfólki er veittur aðgangur að persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að það geti framkvæmt skyldur sínar sem starfsfólk Booking.com.

Varðveislutímabil fyrir persónuupplýsingar byggjast á rekstrarþörfum og lagakröfum. Við geymum persónuupplýsingar þínar eins lengi og nauðsynlegt er til að gera þér kleift að nýta þér þjónustu okkar, að veita þér tryggingaþjónustu til að framfylgja viðeigandi lögum, að leysa deilur við aðra aðila og eftir því sem nauðsynlegt er til að rekstur fyrirtækisins geti haldið áfram, þ.á.m. til að hafa uppgötva og fyrirbyggja svik eða aðra ólögmæta starfsemi.

Til dæmis varðveitum við tilteknar upplýsingar um færslur og samskipti uns tímamörk fyrir kröfur sem rísa vegna færslna eru útrunnin eða til að framfylgja reglugerðarkröfum varðandi varðveislu slíkra gagna. Þegar ekki er lengur þörf fyrir persónuupplýsingar þá annað hvort afkennum við eða steypum saman (sameinum) gögnunum (en í því tilfelli kunnum við að varðveita áfram og nota afkenndar eða samsteyptar upplýsingar í greiningarskyni) eða eyðum örugglega gögnunum.

Hér má lesa meira um öryggis- og varðveisluráðstafanir.

14. Upplýsingaöryggi

Okkur er mikið í mun að persónuupplýsingar þínar séu öruggar og við höfum innleitt viðeigandi öryggisráðstafanir til að vernda trúnað, heilindi og aðgengi að persónuupplýsingunum sem við söfnuðum um þig og tryggja að slíkar upplýsingar séu unnar samkvæmt öllum gildandi lögum um gagnaleynd.

Hlutar um fótspor, beina markaðssetningu, sjálfvirkar ákvarðanir og breytingar á persónuverndaryfirlýsingunni koma fram í aðalefni persónuverndaryfirlýsingar Booking.com.

15. Hafa samband við okkur

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef frekari spurningar eða áhyggjur vakna.

Með pósti: Booking.com, 597 Oosterdokskade 163, 1011 DL, Amsterdam, Hollandi.

Með tölvupósti: dataprotectionoffice@booking.com

16. Breytingar á þessari tilkynningu

Þessi tilkynning er ekki samningsbundin og Booking.com áskilur sér rétt til að breyta henni öðru hverju til að tryggja að hún haldi áfram að endurspegla hvernig við söfnum og notum persónuupplýsingar um þig. Hvers kyns uppfærslur eða breytingar á þessari tilkynningu verða aðgengilegar fyrir þig. Þú ættir að skoða reglulega þessa tilkynningu til að tryggja að þú áttir þig á hvernig við söfnum og notum persónuupplýsingar þínar.

Þessi tilkynning var uppfærð síðast hinn 11. janúar 2024.

 

Þegar þú notar netþjónustu okkar eða öpp notum við fótspor (e. cookies) og önnur rakningartól á netinu (sem við köllum líka „fótspor“ í þessari fótsporayfirlýsingu.

Fótspor er hægt að nota á ýmsan hátt, t.d. svo að Booking.com-vefsíðan virki, til að greina umferð eða í auglýsingatilgangi.

Þú getur lesið áfram hér ef þú vilt fræðast um hvað fótspor eru, hvernig þau eru notuð og hverjir valkostir þínir eru.

Hvað eru fótspor og önnur rakningartækni á netinu?

Hvernig eru fótspor notuð?

Hverjir eru valkostir þínir?


Hvað eru fótspor og önnur rakningartækni á netinu?

Fótspor í vefvafra er lítið textaskjal sem vefsíða kemur fyrir í vefvafra tölvunnar eða snjalltækisins þíns.

Þessi fótspor geyma upplýsingar um efnið sem þú skoðar og smellir á á netinu, til þess að muna val þitt og stillingar og greina hvernig þú notar þjónustu á netinu.

Fótspor skiptast í „fótspor fyrstu aðila“ og „fótspor þriðju aðila“:

  • Fótspor fyrstu aðila eru fótsporin sem koma frá aðilanum sem stýrir léninu sem fótsporin eru á – í okkar tilfelli er það Booking.com. Öll fótspor sem koma frá okkur sjálfum eru „fótspor fyrstu aðila“.

  • Fótspor þriðju aðila eru fótspor sem samstarfsaðilar sem við treystum og höfum valið sérstaklega til þess hafa komið fyrir á lénum okkar. Þetta geta verið samfélagsmiðlasamstarfsaðilar, auglýsingasamstarfsaðilar, öryggisþjónustur og aðrir.

Þetta geta verið annað hvort „tímabundin fótspor“ eða „varanleg fótspor“:

  • „Tímabundin fótspor“ endast aðeins þar til þú lokar vafranum og lýkur þannig notkunarlotunni. Þá er þeim eytt.

  • „Varanleg fótspor“ hafa mismunandi líftíma og eru áfram á tölvunni eða tækinu þínu eftir að vafranum er lokað. Á vettvangi Booking.com reynum við að vera eingöngu með varanleg fótspor (eða leyfa varanleg fótspor sem koma frá þriðja aðila) sem hafa takmarkaðan líftíma. Af öryggisástæðum, eða í öðrum undantekningartilvikum, gætum við stundum þurft að gefa fótspori lengri líftíma.

Vefvafrafótspor gætu geymt upplýsingar eins og IP-tölu þína eða aðrar auðkennandi upplýsingar, tegund vafra sem þú notar og upplýsingar um efnið sem þú skoðar og smellir á á stafrænum þjónustuveitum. Með því að geyma þessar upplýsingar geta vefvafrafótspor munað val þitt og stillingar fyrir netþjónustur og greint hvernig þú notar þær.

Auk fótspora notum við jafnframt rakningartækni sem er mjög svipuð. Vefsíðan okkar, tölvupóstar og snjallsímaöpp geta innihaldið litlar gagnsæjar myndskrár eða kóðalínur sem skrásetja notkun þína á þeim. Dæmi um þetta eru „vefvitar“, „atburðarit“, „vefslóðir til rakningar“ eða „hugbúnaðarþróunartól“ (svokölluð SDK):

  • Vefvitar kallast mörgum ólíkum nöfnum. Þeir gætu einnig verið kallaðir vefpöddur, rakningarpöddur, tögg, veftögg, síðutögg, rakningarpixlar, pixlatögg, 1X1 GIF eða glær GIF.

    Í stuttu máli eru þessir vitar örlítil mynd sem er aðeins einn pixill sem hægt er að senda í tölvuna þína sem hluti af vefsíðubeiðni, í appi, í auglýsingu eða í tölvupósti á HTML-sniði.

    Hægt er að nota þá til að sækja upplýsingar úr tækinu þínu, til dæmis tegund tækis eða stýrikerfis, IP-tölu og hvenær þú opnaðir síðuna. Þeir eru einnig notaðir til að setja fótspor og lesa fótspor í vafranum þínum eða til að láta koma fyrir fótspori.

  • „Atburðarit“ eru lítil tölvuforrit sem eru felld inn í vefsíður okkar og gefa síðunum ýmis konar aukalega eiginleika. Atburðarit tryggja að vefsíðan virki rétt. Til dæmis keyra atburðarit vissa öryggiseiginleika og gera gagnvirka grundvallareiginleika mögulega á vefsíðunni okkar.

    Atburðarit er einnig hægt að nota í greiningar- eða auglýsingatilgangi. Til dæmis getur atburðarit safnað upplýsingum um það hvernig þú notar vefsíðu, svo sem hvaða síður þú opnar eða hverju þú leitar að.

  • Vefslóðir til rakningar eru hlekkir sem innihalda einstakt auðkenni. Þær eru notaðar til að rekja af hvaða vefsíðu þú komst á Booking.com eða hvaða app þú ert að nota. Eitt dæmi um það væri ef þú kemur á vefsíðu okkar frá samfélagsmiðlasíðu, leitarvél eða vefsíðu einhvers samstarfsaðila okkar.

  • Hugbúnaðarþróunartól (SDK) eru hluti af forritunarkóða appsins okkar og ólíkt vafrafótsporum eru upplýsingar í hugbúnaðarþróunartólum geymdar í minni appsins.

    Þau eru notuð til að greina hvernig öppin eru notuð eða til að senda sérsniðnar push-tilkynningar. Þau gera það með því að skrá einstök auðkenni tengd tækinu þínu, svo sem auðkenni tækisins og IP-tölu. Jafnframt skrá þau hvað þú gerir í appinu og staðsetningu netsins þíns.

Öll þessi rakningartækni kallast „fótspor“ hér í þessari yfirlýsingu um fótspor.


Hvernig eru fótspor notuð?

Fótspor eru notuð til að safna upplýsingum, svo sem:

  • IP-tölu

  • Auðkenni tækisins

  • Skoðaðar síður

  • Tegund vafra

  • Vafraupplýsingar

  • Stýrikerfi

  • Netþjónustuveitu

  • Tímastimpil

  • Hvort þú hafir brugðist við auglýsingu

  • Vefslóð til rakningar

  • Eiginleika sem notaðir eru á vefsíðum/í öppum

Þau gera það að verkum að þú þekkist sem sami notandinn á öllum síðum vefsíðu, öllum tækjum, á milli vefsíðna eða þegar þú notar öppin okkar. Þegar kemur að tilgangi þeirra er þeim skipt í þrjá flokka – hagnýt fótspor, greiningarfótspor og markaðssetningarfótspor.

Hagnýt fótspor

Þetta eru fótspor sem eru nauðsynleg svo að vefsíður okkar og öpp virki rétt og þau þurfa að vera virk til þess að þú getir notað þjónustu okkar.

Hagnýt fótspor eru notuð til að skapa tæknilega fullkomnar, notendavænar vefsíður og öpp sem eru sjálfkrafa lagaðar að þínum þörfum og óskum svo að þú eigir auðvelt með að skoða og bóka á þeim. Þau eru einnig nauðsynleg fyrir ýmsa mikilvæga öryggis- og aðgengiseiginleika.

Nánar tiltekið gildir að þessi fótspor:

  • Eru nauðsynleg svo að vefsíður okkar og öpp virki rétt, svo að þú getir stofnað svæði, skráð þig inn á svæðið og haft umsjón með bókunum þínum.

  • Muna gjaldmiðil og tungumálastillingar sem þú valdir, fyrri leitir og aðrar kjörstillingar þínar til að hjálpa þér að nota vefsíðurnar okkar og öpp á skilvirkan og árangursríkan hátt.

  • Muna skráningarupplýsingar þínar svo þú þurfir ekki að slá þær aftur inn í hvert sinn sem þú heimsækir vefsíðuna okkar eða app. (Engar áhyggjur, lykilorð verða alltaf dulkóðuð.)

Greiningarfótspor

Þessi fótspor mæla og rekja hvernig vefsíða okkar og app eru notuð. Við notum þessar upplýsingar til að bæta vefsíðu okkar, öpp og þjónustu.

Nánar tiltekið gildir að þessi fótspor:

  • Hjálpa okkur að skilja hvernig þeir sem skoða síðuna og viðskiptavinir eins og þú nota Booking.com og öppin okkar.

  • Hjálpa okkur að bæta vefsíðu, öpp og samskipti okkar til að þau séu örugglega áhugaverð og viðeigandi.

  • Gera okkur kleift að finna út hvað virkar og hvað ekki á vefsíðum okkar og í öppum okkar.

  • Hjálpa okkur að skilja hversu áhrifaríkar auglýsingar og samskipti okkar eru.

  • Kenna okkur hvernig notendur hegða sér á vefsíðu og í öppum okkar eftir að þeim hefur verið sýnd auglýsing á netinu, þarf með taldar auglýsingar á vefsíðum þriðju aðila.

  • Gera viðskiptafélögum okkar kleift að komast að því hvort viðskiptavinir þeirra nýta sér tilboð á gistingu sem eru partur af vefsíðum þeirra.

Gögnin sem við söfnum með þessum fótsporum eru til dæmis hvaða vefsíður þú hefur skoðað, hvaða vefsíðum þú komst frá og fórst á af okkar síðu, hvernig vettvang þú notaðir, hvaða tölvupósta þú hefur opnað og brugðist við, og upplýsingar um tíma og dagsetningu. Þetta þýðir að við getum líka notað upplýsingar um hvernig þú notaðir síðuna eða appið, eins og til dæmis fjölda smella á ákveðinni síðu, músahreyfingar þínar og skrun, leitarorð sem þú notar og textann sem þú skrifar í ýmsa reiti.

Markaðssetningarfótspor

Þessi fótspor eru notuð af Booking.com og samstarfsaðilum sem við treystum til að safna saman upplýsingum um þig yfir lengri tíma, á ýmsum vefsíðum, í ýmsum öppum eða á öðrum vettvöngum.

Markaðssetningarfótspor hjálpa okkur að ákveða hvaða vörur, þjónustu og auglýsingar byggðar á áhugasviði við eigum að sýna þér, bæði á vefsíðum okkar og öppum og utan þeirra.

Nánar tiltekið gildir að þessi fótspor:

  • Setja þig í vissan flokk eftir áhugasviðum, til dæmis á grundvelli vefsíðna sem þú skoðar og hvað þú smellir á. Við notum þessa flokka til að sýna sérsniðið efni (svo sem hugmyndir að ferðalögum eða ákveðna gististaði) á Booking.com og öðrum vefsíðum.

  • Sýndu auglýsingar sem eru sérsniðnar og byggðar á því sem þú hefur áhuga á, bæði á Booking.com, í öppum okkar og á öðrum vefsíðum. Þetta kallast „endurmiðun“ og byggir á notendahegðun eins og til dæmis hvaða áfangastöðum þú hefur leitað að, hvaða gististaði þú hefur skoðað og hvaða verð þú hefur séð. Þetta getur einnig verið byggt á kaupvenjum þínum eða öðru athæfi á netinu. Booking.com notast aðallega við þjónustu frá Criterio B.V., Herengracht 124, 1015 BT Amsterdam, Hollandi, fyrir einstaklingsbundnar endurmiðunarauglýsingar út frá sumum upplýsingum sem safnað er í gegnum vefsíðuna okkar. Með því að notast við reiknirit greinir Criterio leitarhegðun og getur þá mælt með persónulegum og markvissum vörum á auglýsingaborða á öðrum vefsíðum. Pixlatækni Criterio gerir okkur einnig kleift að meta auglýsingarherferðir okkar. Frekari upplýsingar um tækni Criterio finnur þú í persónuverndarstefnu Criterio .

    Þér geta verið sýndar endurmiðunarauglýsingar bæði fyrir og eftir að þú ferð af Booking.com, þar sem tilgangur þeirra er að hvetja þig til að leita eða fara aftur á vefsíðuna okkar. Þú gætir einnig séð þessar auglýsingar á vefsíðum, í öppum eða tölvupóstum.

  • Fella samfélagsmiðla inn í vefsíðu okkar og öpp. Þetta gerir þér kleift að deila efni eða vörum á samfélagsmiðlum eins og Facebook, Instagram, YouTube, Twitter, Pinterest, Snapchat og LinkedIn.

    Þumaltáknið og deilingarhnappar virka þannig að þeir taka með sér hluta af kóða frá viðkomandi samfélagsmiðli og þá er hægt að koma fótsporum þriðja aðila fyrir á tækinu þínu.

    Þessi fótspor geta haft fyrst og fremst hagnýtan tilgang, en þau geta líka verið notuð til að skrásetja hvaða vefsíður þú ferð á úr netkerfi þeirra, til þess að byggja upp mynd af leitarhegðun þinni á netinu og sýna þér sérsniðnar auglýsingar. Þessi mynd er byggð upp með því að nota upplýsingar sem hægt er að bera saman og eru fengnar þegar þú ferð á aðrar vefsíður í netkerfi þeirra.

    Nánari upplýsingar um það hvað samfélagsmiðlar gera við persónuupplýsingar þínar er að finna í fótspora- og/eða trúnaðaryfirlýsingum þeirra: Facebook (til þess teljast Instagram, Messenger og Audience Network), Snapchat, Pinterest og Twitter. Athugaðu að þessar yfirlýsingar kunna að vera uppfærðar öðru hvoru.

Við vinnum með þriðju aðilum sem við treystum að upplýsingaöflun. Við gætum einnig stundum deilt upplýsingum með þessum þriðju aðilum, svo sem netfangi þínu eða símanúmeri. Þessir þriðju aðilar gætu tengt upplýsingar um þig við aðrar upplýsingar sem þeir safna til að búa til sérstakan markhóp eða birta sérsniðnar auglýsingar. Nánari upplýsingar um það hvernig þessir þriðju aðilar vinna úr upplýsingum um þig er að finna á eftirfarandi hlekkjum: Svona notar Google upplýsingar, Upplýsingaskilmálar Facebook.

Við gætum einnig notað tækni, svo sem pixla, sem við teljum ekki vera fótspor vegna þess að þeir vista engar upplýsingar á tækinu þínu.

Við setjum stundum pixla í tölvupósta, til dæmis í fréttabréf. „Pixill“ er rafræn skrá, einn pixill að stærð, sem er sett í tölvupóstinn og hleðst inn þegar þú opnar hann. Með því að nota pixla í tölvupóstum getum við séð hvort pósturinn komst til skila, hvort og hvenær þú last hann og hvað þú smelltir á.

Við fáum þessar upplýsingar einnig um push-tilkynningar sem við sendum þér. Þessi tölfræði veitir okkur endurgjöf um leshegðun þína, sem við notum til að bæta markaðssetningu okkar og gera samskipti okkar meira viðeigandi fyrir þig.


Hverjir eru valkostir þínir?

Nánari upplýsingar um umsjón fórspora og hvernig þeim er eytt má finna á allaboutcookies.org eða hjálparsíðu vafrans þíns.

Í stillingum vafra eins og Internet Explorer, Safari, Firefox eða Chrome getur þú stillt hvaða fótspor þú samþykkir og hafnar. Það veltur á vafra hvar þú finnur þessar stillingar:

Ef þú kýst að hafna vissum hagnýtum fótsporum er hugsanlegt að þú getir ekki notað einhverja þjónustuþætti okkar.

Auk sérstakra stillinga sem við kunnum að bjóða upp á á Booking.com og í öppunum getur þú einnig hafnað vissum fótsporum:

  • Greining

    Til að koma í veg fyrir að Google Analytics safni greiningarupplýsingum í vissum vafra smellirðu á þennan hlekk: Vafraviðbót til að hafna Google Analytics (aðeins í boði í tölvum).

  • Auglýsingar

    Við reynum alltaf að starfa með auglýsinga- og markaðsfyrirtækjum sem eru aðilar að Network Advertising Initiative (NAI) og/eða Interactive Advertising Bureau (IAB).

    Aðilar að NAI og IAB fara eftir viðmiðunar- og siðareglum iðnaðarins og leyfa þér að hafna auglýsingum sem byggjast á notendahegðun.

    Farðu á www.networkadvertising.org til að kanna hvaða aðilar að NAI kunna að hafa skilið eftir auglýsingafótspor í tölvunni þinni. Ef þú vilt hafna auglýsingum einhvers NAI-aðila sem byggjast á notendahegðun, skaltu haka við kassann við það fyrirtæki.

    Þú getur einnig farið á síðurnar www.youronlinechoices.com eða www.youradchoices.com til að komast að því hvernig hægt er að hafna sérsniðnum auglýsingum.

    Snjalltækið þitt getur mögulega gert þér kleift að takmarka deilingu upplýsinga í endurmiðunarskyni í gegnum stillingar tækisins. Ef þú gerir það þarftu samt að athuga að þótt þú lokir á hóp auglýsenda á netinu birtast þér enn auglýsingar á netinu og þú gætir lent í markaðsgreiningum. Þetta þýðir aðeins að netið sem þú lokaðir á getur ekki lengur sýnt þér auglýsingar sem eru sérsniðnar að vefstillingum þínum og nethegðun.

Sumar vefsíður bjóða upp á „Ekki rekja“-eiginleika („Do not track“) sem gera þér kleift að banna vefsíðu að rekja þig. Að svo stöddu styðjum við ekki vafrastillinguna „Ekki rekja“ („Do not track“).

Svona hefur þú samband við okkur

Ef þú ert með einhverjar spurningar um þessa fótsporsyfirlýsingu skaltu endilega senda tölvupóst á dataprotectionoffice@booking.com.<0>

Breytingar kunna að vera gerðar öðru hverju á fótsporsyfirlýsingu okkar. Ef breytingarnar eru umtalsverðar, eiga sérstaklega við þig eða hafa áhrif á gagnaverndarréttindi þín, höfum við samband við þig og segjum þér frá þeim. Við mælum samt með því að þú skoðir þessa síðu reglulega til að þú fréttir af öllum öðrum (minniháttar eða ekki eins mikilvægum) breytingum.